sunnudagur, desember 18, 2005
Veselé Vánoce

Nú er komin jólastemming í okkur! Það kyngir niður snjó hérna, snjóaði allan gærdag á meðan við vorum að redda afganginum af jólakaupunum. Fullkomið veður þegar maður er í svoleiðis leiðangri. Við erum þá búin að redda öllum gjöfum fyrir utan eina og það er ekki enn víst hvað það verður. Erum víst pínu tæp á tíma.
Nú eru einungis fjórir dagar í að við fljúgum á klakann. Erum komin með hörkufiðring í magann. Að vísu gæti það verið af því að við bökuðum jólakökur í alltof miklu magni og erum að reyna að klára þær áður en við förum á klakann.
Að allt öðru þá kláraði Sylvía prófin síðasta föstudag - ekki er þó víst að lokaeinkunnir verði fáanlegar fyrr en eftir jól. Hvað eru þessir kennarar að reyna að gera manni?!?
Mamma og pabbi (Sylvíu) til hamingju með 23 árin í dag - meirihluti ævi ykkar, það er árangur!
Sjáumst eftir nokkra daga,
Sylvía & Alli
