þriðjudagur, ágúst 16, 2005

 

Batman returns to Prague

Ákváðum að fara út í garð hérna hinum megin við götuna til að horfa á eldrautt sólsetrið, rómantísk að vanda. Eftir að hafa setið þar í smá stund fórum við að veita fuglunum sem þarna voru að fljúga nokkra athygli og fannst þeir eitthvað skrítnir - flugu skringilega. Það var væntanlega af því að þetta voru ekki fuglar heldur leðurblökur. Já, við ljúgum því ekki, það eru leðurblökur í garðinum hérna í miðborg Prag! Erum kannski alveg grænir Íslendingar (ekki við öðru að búast) en við bjuggumst ekki við því að sjá leðurblökur í kvöldrómantíkinni. En að sjálfsögðu var það bara enn rómantískara, eins og þið getið ímyndað ykkur.

Algjörlega þessu ótengt þá vildum við endilega sýna ykkur sem ekki komið í heimsókn (næst þegar mamma og pabbi úr HFJ koma í heimsókn) eruð að missa af. Sylvía tók sig til og gerði all svakalega tertu með hvítu súkkulaði, jarðarberjum og rjóma. Að sjálfsögðu lagði Alli hönd á plóg... og borðaði sem sagt vel af henni. Ákváðum að setja mynd af sköpunarverkinu hérna.

Annars hefur ekki margt gerst fyrir utan það að bíllinn okkar fór í ferðalag án okkar. Okkur þótti það verra. En það var víst okkar gleymsku að kenna því lögreglan tók hann og fór með hann í bílageymslu en þar þurftum við að leysa hann út. Alli vildi meina að þetta væri bara góð reynsla þar sem þetta væri eins og æfing þegar að því kæmi að eignast börn og borga þau út úr steininum. Ástæðan fyrir þessu veseni á lögreglunni var sú að eins og við sögðum frá hérna fyrir ekki svo löngu þá eru reglulega þrifnar göturnar hérna og ef maður forðar ekki bílnum sínum fyrir klukkan sjö að morgni þann daginn þá er bíllinn bara fjarlægður og þetta gera %#$% á þeim bara nokkrum sinnum á sumri eins og ekkert sé.

Jæja Alli er farinn að suða um Batman búning - best ég komi honum í háttinn,
Sylvía & Batman

This page is powered by Blogger. Isn't yours?