laugardagur, maí 28, 2005

 

Feelin' hot hot hot

Já það er sko heitt hjá okkur hérna í Prag. Hangir í 30°C sem er bara ljúft! Erum búin að baka okkur almennilega í dag og stefnir í áframhaldandi mall á morgun :-)

Skiljum hreinlega ekki af hverju Pragbúar eru ekki búnir að gera vatnsleikjagarð hérna, það væri sko vel þegið! Alli reyndi þó að skapa þannig stemningu með því að hella yfir Sylvíu meðan hún lá afslöppuð í sólbaði. Þetta reyndist ekki hafa sömu áhrif og meðal sundlaug. Alli mun þó halda áfram að reyna.

Sólardögum er eytt í garðinum hérna hinum megin við götuna. Þar safnast saman þó nokkur hópur af fólki, Tékkum, útlendingum og að ógleymdum hundunum og alltaf góð stemning. Höfum þó komist að þeirri niðurstöðu að kanarnir hérna skari fram úr þegar kemur að frisbee-kasti þar sem þeir halda á bjórglasi án þess að hella niður dropa á meðan þeir kasta tugi metra.
(Alli: Guðjón þú verður að koma hingað í æfingabúðir, aðstaðan ólíkt betri en hjá Landmat.)

Jæja, ætlum að koma okkur út að borða.. að sjálfsögðu utandyra.
Sylvía & Alli

mánudagur, maí 23, 2005

 

Löggan stal bílunum

Við höfum ekki skrifað í alltof langan tíma þar sem netið datt út hjá okkur. Þar sem þjónustan hér er einstaklega hæg tók það kappana meira en viku að setja það upp aftur hjá okkur og það eftir margar áminningar frá okkur. Vonum að nettengingin endist lengur í þetta skiptið.

Það er gerðist þó eitt markvert í vikunni sem leið, löggan mætti á svæðið og fjarlægði alla bílana sem voru við götuna fyrir utan hjá okkur ásamt öðrum götum hverfisins. Þeir höfðu nú að vísu ástæðu til, það var búið að setja upp bannmerki við því að leggja við göturnar á ákveðnum tíma, 20. maí milli 7:00 - 11:00, því þá átti að smúla götuna. Við höfðum sem betur fer tekið mark á þessum merkjum og því bíll okkar óhultur. En það er ekki hægt að segja um alla bílana því lögreglan fjarlægði fleiri tugi og keyrði með þá burtu. Þetta hefði maður nú aldrei séð á klakanum!

Þetta var þó stórgott því það virtist miklum vandkvæðum háð að ná þessum bílum til baka og enn eru laus stæði við götuna, það er mjög sjaldgæft. Hér eru stæði nýtt mun betur en á Íslandi. Setjum við því hér inn sönnun fyrir því hvað við erum orðin dugleg að leggja. ATH þetta var nú samt frekar þægilegt stæði!

Annars erum við loksins búin að kaupa okkur fataskáp í svefnherbergið. Vorum bara með kommóðu sem var nú ekki alveg nóg fyrir fötin okkar beggja. Þannig að ferðatöskurnar eru ekki ennþá á gólfinu hjá okkur.

Eins og sjá má er myndavélin ekki biluð og við munum fara að skjóta inn fleiri myndum á næstunni.. eins og þessari :-)
Já já, það er varasamt að sitja úti í sólinni að lesa, er þó kaffibrún núna.

Kveðja,
Sylvía & Alli

mánudagur, maí 09, 2005

 

Fundum kisu

Það er búið að vera hrikalega kalt hérna, í kringum 10-12°C og við farin að íhuga notkun á KRAFTgöllunum (sem var samviskusamlega pakkað með).

Engu að síður var farið í rosalega göngu á síðastliðinn sunnudag, áttum loksins lausa helgi og það var farið í túristaleik. Gengum að Hrad en það er aðalkastali Prag og eiginlega ekkert annað að segja en vá. Eftir að hafa skoðað sjálfan kastalann skoðuðum við kastalagarðana, en þetta er hálfgert völundarhús af görðum sem liggur niður hlíðina frá kastalaveggnum.

Neðst í garðinum varð fagnaðarfundur þegar Sylvía fann loksins kisu í Prag! Það er gríðarmikið af hundum hérna en lítið sem ekkert hefur sést af köttum. Þarna var á ferðinni smágerð bröndótt læða sem bræddi okkur alveg enda rosalega gæf. Þar sem fljótt kom í ljós að sú stutta var stútfull af kettlingum hefur Sylvía verið óalandi síðan í gær - núna á að koma ketti inn á heimilið. Alli hefur ekki verið alveg jafn liðtækur í þessu, bendir ótt og títt að við viljum ekki láta hakka leðursófann okkar.

Lentum í merkilegri lífsreynslu þegar við komum í enn einn garðinn. Heyrðum þetta líka rosalega garg úr einu horninu. Þegar nánar var að gáð var þar fasani í góðum gír eins ekkert væri sjálfsagðra! Þeir sem ekki þekkja hvað við er átt er bent á að smella hér. Stélið líklega um einn meterinn.

Biðjum að heilsa,
Alli & Sylvía

fimmtudagur, maí 05, 2005

 

Komin með netið heim

Já, loksins erum við komin með netið heim og getum því farið að standa okkur betur með þetta blessaða blogg okkar. Svo hefur Sylvía líka eitthvað að gera á daginn.

Sylvía átti afmæli síðasta mánudag og sárnaði gríðarlega hve fáir mættu til að fagna því með henni. En háskólinn sem hún sótti um í lagði þó sitt til og veitti henni inngöngu á afmælisdaginn. Það þýðir að í lok ágúst byrjar Sylvía í Business Administration námi hjá Anglo-American College hérna í Prag. Svo lögðu jú veðurguðirnir sitt af mörkum til þess að gera afmælisdaginn enn ánægjulegri og var hérna 30°C hiti og glampandi sól, eins og Skorradalsfólk myndi segja "bongóblíða". Sylvía tók loksins einhvern lit og er hætt að falla inn í veggi íbúðarinnar, Alli gerir það þó enn :-)

Það hefur verið pressað á okkur með að senda myndir úr íbúðinni en höfum ákveðið að gera það ekki, einungis myndir utan af húsinu og svo auðvitað nánasta umhverfi (Prag). Þetta vonum við að verði hvatning fyrir sem flesta til þess að koma og sjá.

Bökunarvörurnar sem við vorum að leita að fundust loksins, lyftiduft er t.d. Kyprici prasek do peciva sem er náttúrulega alveg augljóst, af hverju datt manni það ekki strax í hug?!? Það er ekki möguleiki að gera sig skiljanlegan í matvöruverslunum, þar talar ENGINN ensku. Alli þurfti að leika býflugu til þess við fyndum hunangið.

Annars hefur lítið á daga okkar drifið undanfarið og loksins að komast einhver regla á líf okkar hérna. Við erum að sjálfsögðu byrjuð í ræktinni hérna úti, eins og þeir sem okkur þekkja bjuggust kannski við. Hérna er ræktin þó örlítið öðruvísi en við vorum vön heima, hún er svona 1/15 af World Class í Laugum.

Þar sem við vorum einmitt að koma úr ræktinni og Alli búinn að svolgra í sig prótínshakenum þá ætlum við í sturtu núna.

Látum heyra í okkur seinna,
Sylvía & Alli

This page is powered by Blogger. Isn't yours?