miðvikudagur, mars 29, 2006
Celeb boyfriend!
Má nú til með að monta mig aðeins af karlinum. Það kom nefnilega rosa grein í Prague Post (fréttablað á ensku gefið út í Prag) þar sem var viðtal við Allann minn og svo þessi líka flotta mynd af honum. Greinina má finna hér. Rétt að taka fram að myndin var miklu stærri í blaðinu - ekkert smá flott!
Kveðja,
Stoltust
Kveðja,
Stoltust
sunnudagur, mars 19, 2006
Ráðgáta dagsins
Getur einhver útskýrt fyrir okkur hvernig vespa getur skyndilega birst heima hjá manni sprellifandi. Hérna er semsagt sagan: Sylvía og Alli komu heim dag einn og fara inn í eldhús. Rétt er að taka fram að á þessum blessaða degi var snjókoma líkt og undanfarna viku og hiti búinn að vera undir frostmarki frá því fyrir jól. Þegar þau standa inn í eldhúsi sér Sylvía skyndilega eitthvað kvikt fyrir neðan eldhúsgluggann - við nánari athugun kom í ljós að um var að ræða risastóra og vel spræka vespu. Nú spyrjum við ykkur: Hvernig gat vespan komist inn? Hvernig gat hún verið lifandi á þessum árstíma og afhverju í fjáranum þurfti hún endilega að koma inn til OKKAR?
Allar kenningar vel þegnar,
Sylvía & Alli
fimmtudagur, mars 09, 2006
Starfsmaður óskast
Snillingur óskast í hlutastarf hjá Alla og Sylvíu í spennandi starfsumhverfi sem gefur mikla möguleika á þróun í starfi.
Hæfniskröfur
- Mikill stærðfræðilegur skilningur
- Doktorsgráða í stærðfræði er kostur en ekki krafa
- Mjög góð enskukunnátta
- Einstök þolinmæði og vilji til að takast á við ný og krefjandi verkefni
- Varalestur kostur
Starfslýsing
Starfið felur í sér að mæta í stærðfræðitíma á fimmtudögum á milli 18:30 - 21:15 og reyna að túlka og skilja kennarann. Kennarinn er því miður ekki hrifinn af því að tala upphátt og vill frekar hafa samanbitnar tennurnar (á meðan talað er) þegar á kennslustund stendur. Ekki er mælt með að spyrja kennarann spurninga þar sem það hefur slæmar afleiðingar, t.d. tekur það sérlega langan tíma og sjaldnast fást skiljanleg svör. Stærsta áskorunin er svo að reyna að gera stærfræðina skiljanlega fyrir Sylvíu.
Einnig gætu fylgt starfinu smávægileg þrif.
Kaup og kjör
- Frí afnot af gestaherbergi Alla og Sylvíu í Prag
- Akstur úr skóla (þegar Alli nennir)
- Lyklar að kústaskápnum, vinsamlegast aldrei læsa honum þó
- Ásamt því að fá að umgangast Alla og Sylvíu flest alla daga!
Áhugasamir vinsamlegast setjið inn nafn ykkar í Athugasemdir.
Sylvía & Alli hf.

miðvikudagur, mars 01, 2006
Bolludagur!
Það var sko bolludagur í Prag þrátt fyrir að kjánarnir sem búa hérna viti það ekki. Þannig að við Alli neyddumst til þess að sjá um bollubaksturinn fyrir hönd Tékklands. En þar sem þeir þekktu ekki siðinn borðuðum við líka bollurnar fyrir hönd Tékklands... mmmmmm!!!Annars saknar maður rosalega saltkjötsins sem við fáum því miður ekki hérna. Við lifum það nú væntanlega af en það þýðir að við munum ekki fasta eins og við gerum fastlega ráð fyrir að allir geri á Íslandi.
Annars er nú ekki svo margt að frétta héðan en gaman að segja frá því að núna er Sylvía byrjuð í jóga á laugardagsmorgnum og þarf því að vakna um upp úr átta og að sjálfsögðu er Alli dreginn fram úr og hent með í ræktina. Nema hvað að jógað er svona að mestu leiti á Tékknesku og hefur þetta því verið meira en bara kennsla í jóga - alltaf gaman að áætla svona cirka hvað kennarinn er að segja. Sérstaklega þegar hún er að lýsa einhverri öndun!
Annars er bara rúmlega sólarhringur í Íslandsför og Sylvía að sjálfsögðu byrjuð að skipuleggja ferðatöskuna, enda alltof skipulögð og "light packer" og það krefst sko skipulags.
Guðjón - áætluð lending er klukkan 15:30 - vinsamlegast ekki gleyma okkur!
Sjáumst vonandi um helgina,
Sylvía & Alli