miðvikudagur, júní 28, 2006

 

Bíll!

Já - loksins loksins erum við skötuhjú komin á bíl. Hingað til höfum við verið á einhverju sem aðeins minnti á farartæki (VW Golf). Erum sem sagt núna á Peugeot 607. Eina vandamálið við bílinn gæti verið að leggja honum þar sem hann er tæpir 5 metrar :-)



Erum farin í bíltúr,
Sylvía og Alli

mánudagur, júní 26, 2006

 

Bjalla í heimsókn..

Já já, fann eina að skríða um á gólfinu inn í stofu. Ég uppgötvaði nú fyrst hvað ég er farin að linast gagnhvart skordýrum, ég ákvað að drepa hana ekki. Ég er ekki viss um að það hafi verið rétt ákvörðun – því þessi hlýtur að vera að reyna að drepa sig. Í það fyrsta kom hún í heimsókn til mín, sem þýðir fyrir flest skordýr skjótan dauðadaga. En nei ekki í þetta skiptið.

Þá greip bjallan til þess ráðs að klífra upp á dýnuna mína (sem ég var að teygja á). Oks, þessi er nú bara að reyna að lenda undir mér. Ég gríp til þessa ráðs að ýta henni af dýnunni, hún lendir á bakinu.. eftir heillanngt strögl hjá greyinu sá ég fram á að hún myndu ofreyna sig svo ég sneri henni við. Þá klifraði hún strax aftur upp á dýnuna, aulinn!

Núna ákvað ég að setja hana í gluggann, þar er hún enn að staulast um – en hún virðist ekki sérlega fær í að hreyfa sig, hef kíkt þrisvar á hana og í öll skiptin hefur hún verið föst á hvolfi. Ég sný henni alltaf samviskusamlega við. En núna síðast fór ég að velta þessu fyrir mér – ætli þetta sé sjálfsmorðsaðferð bjöllunnar? Klifrar eitthvað aðeins upp og hendir sér á bakið, þannig liggur hún svo föst þangað til hún drepst úr hungri eða hreinlega ofreynir sig og drepst. Hljómar svona svipað gáfulegt og saltát sjálfsmorðs aðferð Japana. Næst held ég að ég snúi henni ekkert við, hendi henni bara í ruslið á morgun..

Farin út í blíðuna,
Sylvía

föstudagur, júní 23, 2006

 

Sporty Spice

Nú er mín á fullu í tennis, hitti tenniskennarann á eyju í Vltava ánni (Moldá fyrir Íslandinga). Til þess að komast þangað þarf ég að ganga þvert í gegnum miðbæinn – sem sagt niður Wenceslas square, sem fyrir þá sem ekki þekkja til þá er þetta eins Laugavegurinn á sterum og ekki er hægt að komast að á malbikinu fyrir túristum.

Allt í lagi með það – ágætis labb út af fyrir sig. En núna síðast var um 30 stiga hiti. Það þýðir að maður smellir sér í stuttbuxurnar, íþróttatoppin og strigaskóna. Oks – en þar sem það er sól og ég er með leiðindartopp þessa dagana þá nota ég derhúfu til að halda hárinu aftur. Eða með öðrum orðum ég leit út eins og sporty spice að labba niður í bæ.

Sem betur fer var ég með leðurtöskuna mína á öxlinni til að toppa útlitið – einhversstaðar verða lyklar, sími og peningaveskið að vera. Agalega var ég meðvituð um þetta útlit á mér, og leið hreint ekki svo þægilega.

En ég hafði gönguna af og mætti í tímann. Sem betur fer gekk betur en síðast og ég fylgdi almennilega eftir – axlirnar 90 gráður, alveg nauðsynlegt í tennis. Þegar tíminn var búin lýsir kennarinn því yfir að ég sé öll að koma til og að þetta hafi verið reglulega góður tími hjá mér.

Ég labbaði heim, stolt með derhúfuna mína. Íhugaði meira að segja nokkur handahlaup og svona spörk út í loftið til að undirstrika sporty spice útlit mitt.

Núna set ég að sjálfsögðu markið á Önnu Kournikovu, það er vera frekar döpur í tennis en fá hins vegar flotta auglýsingasamninga :-)

Kveðja,
Sylvía

þriðjudagur, júní 20, 2006

 

Letilíf

Það er lúxus líf að vera námsmaður í Prag, tja alla vega að sumri til. Eða er það.. ? Ég hef núna sex vikur til þess að drepa þar til Alli fer í frí og við til Krítar.
Að sjálfsögðu er fínt að drepa tímann í sólinni með því að flatmaga út í garði og lesa góða bók. Jú jú mín skellti sér í letina í dag. En skyndilega fann ég nú eitthvað lenda á mér - djöfulsins hlussa, virkaði nú bara rakt! Hendist að sjálfsögðu við með tilheyrandi tilþrifum eins og dömu sæmir og smelli höndinni á bakið. Viti menn - það kúkaði fugl á mig!
Að sjálfsögðu hefur helvítið á honum miðað og því hitt á mitt bakið þar sem manni er nánast ógerlegt að teygja sig, þið þekkið staðinn, þar sem manni klæjar alltaf reglulega.

Frábært ég sat því alein og reyndi að teygja mig og reigja með handklæði í hönd til þess að þrífa fuglaskítinn af bakinu - ég að minnsta kosti náði að drepa þó nokkurn tíma með þessu veseni.

Ætla út að worka tannið,
Sylvía

sunnudagur, júní 11, 2006

 

Gaui í heimsókn

Guðjón stóri bróðir var í heimsókn hjá okkur síðustu tvær vikurnar. Að sjálfsögðu var skellt sér í smávegis ferðalög, sérstaklega þar sem veðrið í Prag var ekki að gera Guðjóni neina greiða. Fórum til Vínar, í göngu í Þýskalandi og svo í Dresden.. enda er Pizza Hut staður þar. Annars ætlum við ekkert að vera að þreyta ykkur með of miklu blaðri og eins og stundum áður þegar við höfum ekki nennt að skrifa þá smellum við inn hrúgu af myndum.

Smelltum okkur fyrst til Vínar - vorum gjörsamlega heilluð enda borgin alveg gullfalleg.

Lítið sætt hús..


Þeir áttu nú alveg eitthvað af ágætis kofum..


Sylvía nennti ekki að labba meira..


Þessi kirkja var full stór - Sylvía náði ekki að hafa alla inn á myndinni, Gaua, Alla og kirkjuna..


Sylvía "had to go into the map"..


Guðjón fann bjór í Austurríki..


Svo enduðum við á Tælenskum veitingastað og fengum okkur að borða..


Eftir að hafa dásamað Vín var aftur farið heim til ylhýra (að vísu skítköldu á þeim tíma) Prag. Og eins og þeir vita sem hafa komið til Prag verður maður að eiga alla vega eina mynd af sér á Karlsbúnni. Guðjón klikkaði nátttúrulega ekki á því..


Fyrst að Prag var svona fúl, alltaf kalt, þá ákváðum við að heilsa upp á Þjóðverjana. Gaui og Sylvía lögðu hausinn í bleyti og ákveðið var að skella sér í göngutúr í Þýskalandi.

Hér má sjá bæinn sem við gengum frá..


Hér erum við rétt lögð af stað..


Það var agalega flott að horfa yfir frá toppnum..


Kannast ekki allir við "hvar er Valli?" Getið þið fundið klifrarann..


Myndi ekki vilja skipta um stöðu við þetta tré..


Eftir að hafa farið í gönguna fundum við þennan skemmtilega kastala sem er byggður upp á fjallstindi. Að sjálfsögðu fórum við og athuguðum staðinn.

Alli var agalega ánægður þegar hann fann þessa. Sylvía er enn að reyna að sannfæra hann um að hann sé á réttri syllu atvinnulega séð..


Ehmm.. fannst þessi bara flott..


Alli og Gaui nenntu ekki að fá Sylvíu með heim..


Svo var endað í Dresden og skoðað Zwinger höllina..


Tschuss,
Sylvía & Alli

This page is powered by Blogger. Isn't yours?