þriðjudagur, janúar 30, 2007

 

Dettur enginn titill í hug

Það hefur eitthvað aðeins verið að gera hjá okkur undanfarnar vikur. Þarsíðustu helgi smelltum við okkur í göngu í Þýskalandi, maður er nú aldrei svikinn af náttúrunni þar. Að vísu fórum við tveimur dögum eftir óveður og þar af leiðandi mikið af brotnum trjám sjáanleg á leiðinni. Tókum nokkrar myndir.

Erum að gera okkur klár..


Víða mátti sjá afleiðingar óveðursins..


Alli fann "náttúrulegan" göngustaf sem vakti furðulega mikinn áhuga hans..


Guðjón tapaði sér..


Alli að horfa yfir lýðinn.. eða skóginn..


Svakaleg hengiflug og Alla ekki sama þegar Sylvía fór að hoppa yfir á glórulausum stöðum!!


Við vorum nú ekki viss hvort þið vilduð virkilega sjá þessa, en það er rétt að taka fram að fallið er alveg jafn mikið og það lítur út fyrir að vera - og göngustígúrinn alveg jafn mjór..


En við komumst alla leið :)


Svo núna síðustu helgi var að sjálfsögðu legið yfir handboltanum og svo horft á pre-eurovision keppnina. Vorum með Íslendinga í heimsókn (ásamt tékkneskri kærustu) og horfðum, tja ekki svo stolt, á söngfuglana. Bróðir eins sem var hérna í heimsókn var sem sagt að keppa.

Vorum alveg á því að Jónsi og hans atriði hlyti að vera það hallærislegasta sem við höfum séð, í fyrsta lagi var útlitið á honum algert slys og hvað var þetta með honum.. vændis-nunnur?

Fyrr um daginn höfðum við samt farið í göngu hérna innan Prag - skoðað semsagt annan kastala hérna í Prag sem heitir Vysehrad. Gaman að sjá Prag þakkta í snjó, að vísu er hann farinn núna og farið að hlýna. Höfum aldrei séð snjó sem endist í meira en viku hérna.

Setjum myndir inn síðar - erum farin að borða,

Sylvía & Alli

föstudagur, janúar 19, 2007

 

Snillingur!

Verð bara að monta mig og láta ykkur vita að konuefnið mitt er snillingur. Hún var að fá úr prófunum og hún er með eitt -A og fjögur A. Á íslenskunni þýðir þetta meðaleinkunn á bilinu 9,5 til 10!!

Það verður flott þegar hún er búin með námið. Ég sé fram á að geta sest í helgan stein og spilað golf allan daginn meðan hún sér fyrir okkur. Ljúft!

- Alli

fimmtudagur, janúar 18, 2007

 

Betra í ár..

Jæja, ég vældi yfir því fyrir tæpu ári hvað það væri hrikalega kalt hérna á veturna enda voru -18°C morguninn sem ég skrifaði á bloggið.

Sé mig því tilneyddan nú til að segja ykkur að þetta er nú eitthvað upp og niður hvernig veðurfarið er hérna í Prag á þessum árstíma. Núna er til dæmis 13°C hiti sem verður að teljast allþokkalegt - Guðjón til að mynda fór á stuttbuxum í vinnuna í morgun og fæst ómögulega til að klæða sig betur.

Yfir & út,

Alli

P.S. Fólk sem býr sunnar en Tékkland er vinsamlegast beðið að commenta ekki :-)

mánudagur, janúar 15, 2007

 

Franskt barn - nei takk

Við höfum komist að þeirri niðurstöðu að frönsk börn eru ekki svo skemmtileg börn. Í raun getum við vel skilið ef foreldrar þeirra kjósa að fara frí án þeirra. Fyrst kynntumst við þessu á Krít, þar var frönsk fjölskylda rétt hjá okkur. Þarna voru foreldrarnir og svo systur á milli fjögurra og sjö ára gamlar. Almáttugur hvað sú eldri gat vælt út í eitt! Það virtist ekki breyta máli hvað gerðist í kringum barnið - hún grenjaði yfir því.

Núna um helgina fórum við svo á kaffihús niðrí miðbæ. Fyrir furðulega tilviljun settust franskar fjölskyldur á borðin sitt hvoru megin við okkur (reyndar var kaffihúsið franskt). Önnur fjölskyldan leit nú hreinlega öll út fyrir að vera í fýlu, en þó var sonurinn sá eini sem vældi eins og stunginn grís yfir því. Þeim hlýtur að hafa þótt Prag einstaklega leiðinleg - tja eða þau voru bara öll þreytt á syninum.

Hinum megin var mun lífsglaðari fjölskylda, ekki misskilja okkur þau voru samt ekkert brosandi. En þar voru þrír bræður og sá yngsti nánast tapaði sér þegar þjónustustúlkan var að taka pöntunina hjá fjölskyldunni. Honum var greinilega mikið í mun að fá réttu kökuna!

Svo virðist sem að alltaf sé eitt systkini sem sér um vælið fyrir allan hópinn - hver er það í þínum systkinahóp?

Au revior.. nei annars bara bless,
Sylvía & Alli

This page is powered by Blogger. Isn't yours?