mánudagur, maí 21, 2007

 

Bæ bæ blogg



Jæja, þá er stóra stundin komin. Við erum búin að pakka saman dótinu okkar og tilbúin að setja það inn í gáminn sem kemur á miðvikudag. Flugið heim er svo á fimmtudagskvöldið og við erum að farast úr spenningi.

Verðum þó að viðurkenna að þegar stundin er farin að nálgast að það mun verða margt í Prag sem við eigum eftir að sakna. Röltum úti í garði eftir kvöldmat í 25°C hita og horfðum á sólina setjast - en þó meira á hundana út um allt.

Eins og margir vita erum við búin að kaupa okkur íbúð á Íslandi og flytjum að sjálfsögðu í Hafnarfjörðinn. Við þurfum að mála og svo seinna meir taka úr gámnum og því allir velkomnir að koma í heimsókn (svo lengi sem þið lyftið pensli eða kassa :-)

Takk fyrir að fylgjast með okkur - erum samt guðs lifandi fegin að vera hætt þessu bloggveseni, ekki beint verið þau duglegustu. En Alli vill gjarnan röfla svo hann væri nú alveg vís til þess að byrja með nýtt blogg.. við látum þá vita hér.

Na shledanou (örugglega í síðasta skipti),
Sylvía & Alli

This page is powered by Blogger. Isn't yours?