fimmtudagur, mars 08, 2007

 

Rocky

Það hefur nú eitthvað drifið á daga okkur síðan við skrifuðum síðast. Helgina 16.-19. febrúar kom Steini vinur Alla alla leið frá Boston, USandA. Á meðan hann var hérna var að sjálfsögðu skoðað Prag og svo lögðum við leið okkur til Þýskalands og Dresden heimsótt enn einu sinni. Við gripum tækifærið og pöntuðum hringana okkar, sem við erum svo að fara að sækja á morgun.

Steini í göngunum á leið upp á topp Frúarkirkjunnar..


Við á göngu meðfram ánni..


Lögðum okkur fyrir framan einhverja styttu, þurftum svo að forða okkur þar sem stalkerinn var svo ofvirkur með myndavélina..


Ekki slæmt að búa þarna..


Og Alli hélt áfram að herma eftir styttum..


Steina leist bara nokkuð vel á Prag, að við höldum, en hann var hins vegar ekki með myndavél svo hann sýnir engum hvað var flott. Við erum nokkuð örugg á því að það er hægt að kæra fólk fyrir myndavélaleysi í Prag. Að sjálfsögðu var skellt sér út á lífið en að íslenskum stíl og því farið að róast í Tékklandi þegar við fórum loks út.

Helgina eftir heimsókn Steina fórum við skötuhjú í heimsókn á klakann. Það var mjög stutt stopp í þetta skiptið svo ekki gafst tækifæri á að hitta fleiri. Við vorum hins vegar rosa dugleg og komum miklu í verk - við ræðum það betur síðar ;-)

Sjáumst síðar krókódíll,

Sylvía, Alli & Adrian

Comments: Skrifa ummæli

<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?