fimmtudagur, mars 29, 2007
Kraká
Síðustu helgi smelltum við okkur í heimsókn til Kraká í Póllandi. Aðaltilgangur ferðarinnar var nú að skoða Auschwitz en skipulögðum þetta þó þannig að við hefðum smá tíma í borginni.
Eftir smá vesen við að finna hótelið kom í ljós að staðsetningin á því var alveg frábær og út um svefnherbergisgluggann horfðum við beint yfir á Wawer'inn - eða aðalkastalann.
Hérna eru myndir teknar frá hótelinu..

Nokkrar aðrar myndir frá Kraká..

Gaman að segja frá því að við kveiktum aðeins á sjónvarpinu um kvöldið og komust að þeirri niðurstöðu að talsetning í Póllandi væri sú allra slakasta. Það virðist bara vera einn maður á öllum stöðvunum sem talar fyrir alla, jafnt konur sem karla! Hann talar meira að segja fyrir teiknimyndirnar. Síðan heyrir maður enskuna lágt undir án þess að geta fylgt henni eftir, vonlaust!
Morguninn nýttum við svo í rölt um miðbæinn og verðum við að segja að Pólland í heildina kom okkur mjög skemmtilega á óvart. Allir rosalega þjónustulundaðir, enskan góð og snyrtilegt yfirbragð yfir öllu. Maður er kannski með einhverja staðalímynd í kollinum en ekki spurning að við hvetjum fólk til að heimsækja landið.

Alli & Sylvía

Comments:
<< Home
Ég er einmitt að æfa mig svo ég geti skammarlaust tekið við íslensku krúnunni - er þetta ekki að verða gott?
Sylvía
Skrifa ummæli
Sylvía
<< Home