þriðjudagur, janúar 30, 2007

 

Dettur enginn titill í hug

Það hefur eitthvað aðeins verið að gera hjá okkur undanfarnar vikur. Þarsíðustu helgi smelltum við okkur í göngu í Þýskalandi, maður er nú aldrei svikinn af náttúrunni þar. Að vísu fórum við tveimur dögum eftir óveður og þar af leiðandi mikið af brotnum trjám sjáanleg á leiðinni. Tókum nokkrar myndir.

Erum að gera okkur klár..


Víða mátti sjá afleiðingar óveðursins..


Alli fann "náttúrulegan" göngustaf sem vakti furðulega mikinn áhuga hans..


Guðjón tapaði sér..


Alli að horfa yfir lýðinn.. eða skóginn..


Svakaleg hengiflug og Alla ekki sama þegar Sylvía fór að hoppa yfir á glórulausum stöðum!!


Við vorum nú ekki viss hvort þið vilduð virkilega sjá þessa, en það er rétt að taka fram að fallið er alveg jafn mikið og það lítur út fyrir að vera - og göngustígúrinn alveg jafn mjór..


En við komumst alla leið :)


Svo núna síðustu helgi var að sjálfsögðu legið yfir handboltanum og svo horft á pre-eurovision keppnina. Vorum með Íslendinga í heimsókn (ásamt tékkneskri kærustu) og horfðum, tja ekki svo stolt, á söngfuglana. Bróðir eins sem var hérna í heimsókn var sem sagt að keppa.

Vorum alveg á því að Jónsi og hans atriði hlyti að vera það hallærislegasta sem við höfum séð, í fyrsta lagi var útlitið á honum algert slys og hvað var þetta með honum.. vændis-nunnur?

Fyrr um daginn höfðum við samt farið í göngu hérna innan Prag - skoðað semsagt annan kastala hérna í Prag sem heitir Vysehrad. Gaman að sjá Prag þakkta í snjó, að vísu er hann farinn núna og farið að hlýna. Höfum aldrei séð snjó sem endist í meira en viku hérna.

Setjum myndir inn síðar - erum farin að borða,

Sylvía & Alli

Comments:
Þrátt fyrir að vera ævintýralega lofthræddur dauðlangar mig til útlanda eftir að hafa skoðað þetta! Alli, þú hefðir nú gott og gaman af því að skipta á nokkrum kúkableyjum ef við kæmum við! :-)

Kveðja frá litlu fjölskyldunni!
 
Skrifa ummæli

<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?