mánudagur, janúar 15, 2007

 

Franskt barn - nei takk

Við höfum komist að þeirri niðurstöðu að frönsk börn eru ekki svo skemmtileg börn. Í raun getum við vel skilið ef foreldrar þeirra kjósa að fara frí án þeirra. Fyrst kynntumst við þessu á Krít, þar var frönsk fjölskylda rétt hjá okkur. Þarna voru foreldrarnir og svo systur á milli fjögurra og sjö ára gamlar. Almáttugur hvað sú eldri gat vælt út í eitt! Það virtist ekki breyta máli hvað gerðist í kringum barnið - hún grenjaði yfir því.

Núna um helgina fórum við svo á kaffihús niðrí miðbæ. Fyrir furðulega tilviljun settust franskar fjölskyldur á borðin sitt hvoru megin við okkur (reyndar var kaffihúsið franskt). Önnur fjölskyldan leit nú hreinlega öll út fyrir að vera í fýlu, en þó var sonurinn sá eini sem vældi eins og stunginn grís yfir því. Þeim hlýtur að hafa þótt Prag einstaklega leiðinleg - tja eða þau voru bara öll þreytt á syninum.

Hinum megin var mun lífsglaðari fjölskylda, ekki misskilja okkur þau voru samt ekkert brosandi. En þar voru þrír bræður og sá yngsti nánast tapaði sér þegar þjónustustúlkan var að taka pöntunina hjá fjölskyldunni. Honum var greinilega mikið í mun að fá réttu kökuna!

Svo virðist sem að alltaf sé eitt systkini sem sér um vælið fyrir allan hópinn - hver er það í þínum systkinahóp?

Au revior.. nei annars bara bless,
Sylvía & Alli

Comments:
Óskar!!!!! Og Frikki í sínum :)
 
Systir mín er lang verst í mínum systkina hóp.
 
Skrifa ummæli

<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?