þriðjudagur, desember 26, 2006

 

Gleðileg jól!



Sökum óviðráðanlegra ástæðna (tja, höfum semsagt enga góða afsökun) þá verður þetta "jólakort" að duga þetta árið en á næsta ári þá munum við senda slík út - og það er loforð.

Gleðileg jól og farsælt komandi ár - hafið það alveg ofboðslega gott um hátíðarnar!

Ykkar,
Alli & Sylvía

föstudagur, desember 15, 2006

 

Köben

Jæja, þá sitjum við á flugvellinum í Köben og bíðum eftir Guðjóni. Merkilegt hvernig fólki tekst að vera seint meira að segja á milli landa!

Nei, það er víst ekki alveg svo einfalt. Af tæknilegum ástæðum er Guðjón að koma með öðru flugi en við frá Prag en verður síðan samferða okkur til Íslands.

Vart hægt að lýsa spennunni en okkur er farið að hlakka alveg ofboðslega til að komast heim á klakann. Við treystum á að það sé norðan gaddur og stórhríð, það væri alveg æðislegt. Ekki verra ef það er þokkalega hvasst! Jú, síðan erum við alveg komin í þörf fyrir að sjá jólaljósin en Tékkarnir eru ekkert í þeim bransa - allavega ekki í heimahúsum.

Röltum þó í gær niður í gamla bæinn og þar er gamla torgið alveg rosalega flott og höfum við aldrei séð jafn flott jólatré. Því miður vorum við ekki með myndavél með okkur en hérna er mynd frá því í fyrra (jólatréð núna er samt MIKLU flottara).



Við lendum síðan á Íslandi klukkan 15:30 og viljum biðja þá sem hafa ekki þegar bókað tíma að gera slíkt hið fyrsta - fyrstir koma fyrstir fá! Nei að öllu gamni slepptu þá lítur út fyrir að þessir "frídagar" verði vel nýttir. En allt er þetta frábært fólk sem við erum að fara að hitta og viljum endilega hitta sem flesta.

Jólakveðja frá Kastrup,
Alli & Sylvía

P.S. Ef einhver er með góða leið til að drepa 3 klst á Kastrup þá endilega látið ljós ykkar skína!

miðvikudagur, desember 06, 2006

 

Jólamarkaður



Við smelltum okkur til Dresden núna síðustu helgi til að heimsækja jólamarkað þeirra Dresdenbúa. Al-þýskt jólaskraut í boði sem að við stóðumst ekki og komum þar af leiðandi heim með góðan jólagrip.

Að sjálfsögðu náði jólaandinn tökum á okkur enda ekki annað hægt á svona markaði. Hundfúlt að geta ekki farið að velja jólatré - enda væru það frekar gagnslaus kaup hér í Prag þar sem við komum á klakann þann 15. des. Alli vildi endilega kaupa þennan en Sylvía var ekki alveg jafn sannfærð og sættumst við á að kaupa eitthvað "aðeins" fíngerðara.



Þar sem hungrið náði tökum á okkur á jólamarkaðinum var farið og keypt sér al-þýska vöfflu með súkkulaði og rjóma. Það reyndist áskorun að borða þetta með höndunum. Þjóðverjar hljóta að vera sérgerðir til þess að borða hluti án borðs þar sem þeir virtust allir vera að borða hinar ýmsu kræsingar í höndunum. Á meðan vorum við íslensku aularnir að strögglast við vöffluna. Það virðast nú leynast einhver þýsk gen í Sylvíu og hún kom bara ágætlega undan þessu en Alli er hins vegar al-íslenskur og var.. tja, þurfti allavega á smúlun að halda (þó að myndin sýni ekki rétta mynd af aðstæðum).



Gaui alltaf með myndavélina á lofti og hægt að sjá myndirnar á síðunni hans.

Auf wiedersehen,
Sylvía & subburnar

This page is powered by Blogger. Isn't yours?