sunnudagur, nóvember 19, 2006
Buongiorno

Það var æðislegt í Róm! En við Alli tókum engar myndir - enda á Gaui mun betri myndavél og hann sá því um þetta. Hægt að sjá myndirnar á http://myndir.ekkert.is/kromby
Vorum á hóteli í 7 mínútna og 47 sekúndna fjarlægð frá hringaleikahúsinu þeirra. Þar fórum við inn ásamt leiðsögumanni. Fengum að heyra frá hinum ýmsu atburðum sem áttu sér stað þarna, yammí. Ein af skemmtilegri tilraunum Rómverja var að nudda lykt kvenkyns ljóns á mann og kynna hann svo fyrir sveltu (á alla vegu) karlkyns ljóni. Niðurstaða: karlkyns ljónið varð ekki ástfangið.
Svo var gengið og gengið og gengið. Skoðuðum ótrúlega margt á einni helgi. Fórum svo á laugardeginum í Vatikanið, ætluðum upphaflega að skoða Sixtínsku kapelluna en það gekk nú ekki nógu vel þar sem þegar við mættum, rétt fyrir níu, var röðin orðin svo hrikalega löng, það tók okkur hátt í 20 mínútur að ganga eftir henni til að finna endann. Ákváðum skyndilega að koma bara aftur seinna og skoða kapelluna og mæta þá í röðina um sex að morgni!
Vatikanið er alger klikkun, ekkert smá flott og ljóst að kapparnir geta lifað á að sýna þetta næstu tvö þúsund árin eða svo.
Reyndum svo að fara aðeins út á lífið á laugardagskvöldinu. Byrjuðum að borða á veitingastað þar sem Alli og Gaui fengu báðir vondan mat, Sylvíu matur var fínn. Gallinn við staðinn var nú ekki bara maturinn heldur var skítakuldi þarna inni. Eftir mat var skellt sér á bar, þar var aðeins hlýrra, en ekki nógu hlýtt til þess að fara úr yfirhöfnunum. Hvers konar stemning er það eiginlega? Mikið var gott að koma inn á hótelið og þiðna.
Þá er innan við mánuður í að við mætum á klakann. Komum til Íslands 15. desember og tilhlökkunin ekki lítil.
Later,
Sylvía & Alli
fimmtudagur, nóvember 09, 2006
Róm - Róm - Róm
Við erum á leiðinni til Rómar í fyrramálið. SCORE! Vonandi tekst Sylvíu ekki að setja Alla á hausinn, en hún mun reyna :)
Verðum þarna annað kvöld..

Lítið annað að frétta af okkur í bili - en fengum æðislegar fréttir í gær. Enn og aftur til hamingju, þið vitið hver þið eruð.
Arrivederci,
Sylvía & Alli (& Gaui)
Verðum þarna annað kvöld..

Lítið annað að frétta af okkur í bili - en fengum æðislegar fréttir í gær. Enn og aftur til hamingju, þið vitið hver þið eruð.
Arrivederci,
Sylvía & Alli (& Gaui)
