föstudagur, júlí 28, 2006

 

Kókoshnetur á ströndinni

Jæja gott fólk, við höfum ákveðið að yfirgefa Prag. Að vísu bara í tvær vikur
þar sem við erum að fara til Krítar. Munum sem sagt koma til með að fljúga
þangað í nótt. Áætlaður flugtími er klukkan 3:00. Ömurlegur tími þar sem við
rúllum þá út á völl fljótlega upp úr eitt. Sem þýðir að verður ekkert sofið
fyrir flugið. Flugið sjálft er svo 2 tímar og 45 mín. Eins gott að maður reyni
að sofa eitthvað því við lendum rétt fyrir sjö á grískum tíma. Getum svo ekki
tékkað okkur inn á hótelinu fyrr en 12. Frábært 4 tímar til að drepa. Ætli
lausnin sé ekki að vera í bikiníinu innanundir (eða sundskýlu) og smella sér
bara á ströndina - hehe vonum að þeir á hótelinu séu með aðstöðu fyrir
farangurinn :-)

Stefnum á að vera svona..



Aðallega af því að Sylvía nennir helst ekki að labba - segist vera komin í
algert frí.

Farin á ströndina,
Sylvía & Alli

miðvikudagur, júlí 19, 2006

 

Bráðnað í Prag

Heilt og sælt veri fólkið. Það hefur ekki margt fréttnæmt gerst undanfarið og því frá litlu að segja. Alli alltaf í vinnunni og Sylvía að farast úr leiðindum. Svo það er lítið að frétta. Hér í Prag er all svakalega heitt þessa dagana. Spáin fyrir morgundaginn hljóðar upp á 37 gráður! Það þýðir að það er vart hægt að vera úti fyrir hita. Maður svitnar við að sitja fyrir framan tölvuna.

Værum alveg til í rana - svo maður gæti kælt sig svona..



Bíðum bara spennt eftir Krítarferðinni - bara 10 dagar þar til við skellum okkur á ströndina.

Alli er komin með hausinn inn í frysti, svo ég ætla að veita honum félagsskap þar,
Sylvía & Alli

mánudagur, júlí 10, 2006

 

Ferðasagan..

Eins og við sögðum frá í síðasta pósti þá skelltum við okkur í smávegis road trip síðasta miðvikudag. Byrjaði ferðin á því að þegar við komum út í bíl hress og spræk um áttaleytið sáum við að einhver hafði haft fyrir því að stela vinstri speglinum af bílnum. Frábært!



Þar sem að allt var lokað í Tékklandi (frídagur) þá var lítið annað í stöðunni en að reyna að koma bílnum í þessu ástandi yfir þýsku landamærin. Stoppuðum á nokkrum bensínstöðvum og athuguðum hvort hægt væri að fá framlengingarspegla - sem eiga að notast þegar maður er með eitthvað í eftirdragi en því miður virðast Tékkarnir ekkert hrifnir af því og það hvergi til. En okkur tókst að komast yfir landamærin og með dyggri aðstoð stóra bróðurs (Gauja) fundum við Peugeot þjónustustöð í Dresden. Því miður áttu þeir ekki réttan spegil en hins vegar teipuðu þeir einn á.. gríðarlega fallegur frágangur. En það dugði og kom okkur til Hollands. Því miður láðist okkur að taka mynd af því fallega sköpunarverki.

Því næst vorum við mætt til Rotterdam - þar var tekið við að skoða borgina. Röltum um og nutum þess að hafa ekkert á stefnuskránni.. tja nema að redda spegli og mótor fyrir spegilinn (kom svo í ljós að það vantaði líka því hinn brotnaði).

Rotterdam er gjörsamlega öll úr múrsteini eða gleri. Borgin var nánast jöfnuð við jörðu í síðari heimsstyrjöldinni og því öll nýleg. En ekki annað hægt að segja en að borgin sé mjög "welcoming" og allir virtust vinalegir og tilbúnir til að hjálpa. Stærsti munurinn var nú að allir skyldu tala ensku og það bara mjög vel. Það er sko þægilegt eftir að hafa búið í Tékklandi.

Svo strax á fimmtudagsmorgunn fórum við á Peugeot verkstæði. Því miður áttu þeir einungis spegilinn til en ekki mótorinn. Eftir nokkur símtöl og vesen kom í ljós að mótorinn var til í bæ nokkrum sem var í klukkutíma fjarlægð frá Rotterdam. Ekki annað hægt að gera en að hringja þangað og panta tíma í viðgerð.

Eyddum restinni af fimmtudeginum í skoðunarferðir um borgina og í Morgan (ekki til í Prag) svo Sylvía gjörsamlega froðufelldi af ánægju og hvarf inn í búðina, greyið Alli. Annars féllum við alveg fyrir þessum húsum - en gátum ekki annað en velt því fyrir okkur hvernig nýtingin er á þeim. Getur maður t.d. hengt upp myndir vandræðalaust?



Alli fann svo nokkur háhýsi, honum til mikillar ánægju enda gríðarleg skemmtun fyrir þessa elsku að telja hæðirnar.. nei, það verður ekkert þreytt í borg sem er full af háhýsum.



Svo á föstudag var aftur lagt í rúnt til að mixa þennan spegil - enda ekki sniðugt að keyra autobahninn með, tja.. vægast sagt takmarkaða sýn. Að sjálfsögðu spilaði líka inn í að Aðalgeir taldi það náttúrulega heppilegast að keyra ávallt á vinstri akrein á autobahninum svo hann þyrfti ekki að nota spegilinn. Sem sagt að halda sér helst á 170-200 km/klst alla leiðina. Eins og gefur að skilja lagði Sylvía mikla áherslu á að finna spegil fyrir bakaleiðina!

Gekk bara vel að fá spegilinn en bakaleiðin til Rotterdam því miður ekki alveg jafn spræk. Týndumst aðeins á þessum hraðbrautum þeirra. Eins og sjá má er nóg af vegum til að taka..



Svo loksins þegar við komum til Rotterdam var deginum eytt í leti og ís - enda fínasta veður og því nauðsynlegt að borða nóg af ís. Enda eru þeir með Häagen Dazs.



Svo lögðum við af stað til Prag á laugardagsmorgni með nýjan spegil og ennþá þreytta rassa frá fyrri ferðinni. Ferðin byrjaði nú bara vel - alveg þar til við lentum í smávegis teppu á autobahninum í Þýskalandi. Jú, að sjálfsögðu var þung umferð enda Þýskaland að fara að keppa um kvöldið. Þessi "litla" teppa tafði okkur um 4,5 klukkustundir og heildarferðatíminn því 14 klst. Þreyttir rassar voru sko ekki sáttir með þessa meðferð. Bílarnir voru stopp svo lengi að fólk var bara farið út úr bílnum með kaffibollann að spjalla við fólkið í þeim næsta.



Séð fram fyrir bílinn.



Séð aftur fyrir bílinn.



Vonum að þið hafið nennt að lesa þetta allt,
Sylvía & Alli

þriðjudagur, júlí 04, 2006

 

Road trip!

Já við ætlum að skella okkur í smávegis "road trip" í fyrramálið. Það er sem sagt 9-10 tíma akstur.. fyrir utan stopp. Erum nefninlega að fara til Hollands og munum vera þar fram á helgi. Stefnan er sett á að gista í Rotterdam og skoða staðinn. Reynum svo örugglega að kíkja aðeins til Amsterdam þar sem það er nú bara klukkutíma akstur á milli.



Á leiðinni til Hollands keyrum við sem sagt í gegnum Þýskaland - úff, Sylvíu kvíðir nú aðeins fyrir því að fara með Alla undir stýri á Autobahninn. Krossleggið fingur og vonið það besta ;-)

Heyrumst svo eftir helgi (með túlípana, tréklossa og þreytta rassa),
Sylvía & Alli

This page is powered by Blogger. Isn't yours?