föstudagur, maí 26, 2006
Ambiente
Allt gott að frétta úr Prag. Sylvía búin í prófum.. því miður engar einkunnir komnar strax. Einnig er Gaui kominn í heimsókn. Hann hefur nú komið til Prag áður en virðist ekkert kannast við nema botninn á bjórglösum og eitt sund. Þóttist nú kannast við Karlsbrúna en við drögum það nú í efa.
Sylvía og Gaui hafa verið í tennis núna og Sylvía strax sannfærð um að hennar tíma sé best varið í þetta nýja sport. Hún er því að pæla að gerast atvinnumaður í tennis og hætta þessu háskólaveseni.. eða ekki.
Annars vorum við að koma inn úr mat. Rif, vængir, súkkulaði fondue og fersk jarðaber með ís. Mmmmmmmm.... Fátt sem toppar þennan veitingastað. Liggjum því á meltunni núna. Erum að skoða netið fyrir morgundaginn en við stefnum á að rúlla til Vínar, ekkert okkar hefur áður komið þangað. Því miður hefur ekki tekist að finna Pizza Hut stað þar, höfum gert dauðaleit á netinu. Að sjálfsögðu forgangsröðum við rétt!

Jæja, ætlum að horfa á Unni Birnu detta,
Sylvía & Alli (& Gaui)

laugardagur, maí 20, 2006
Crap á matseðlinum
Búin að vera frábær helgi hérna í Prag. Það vill nefninlega þannig til að Sylvía fékk svo kallað take-home final í stærðfræði. Þar sem að þessi stærðfræði er ekki fyrir hvítan kött þá eyddi Sylvía meirihluta föstudags í þetta og við saman svo í dag búin að eyða nánast öllum deginum í dæmin. Gaman að segja frá því að þetta eru bara átta dæmi. Við erum búin með sjö, bara eitt eftir. Tja, já ef einhver er góður í að finna critical points og classify them þá endilega láta okkur vita því við erum með eina "skemmtilega" jöfnu í boði.

Annars var nú gaman að fara út að borða í dag. Skelltum okkur á nýjan stað í hádeginu til að fá okkur eitthvað létt í magann. Leist okkur svona agalega vel á staðinn þar til við sáum eftirrétta matseðilinn.. vorum þá aðeins hikandi. Sylvía rak augun í einn rétt: "Crap with banana and caramel sauce". Ehmm.. hljómar ekki vel! Þarna var gott að geta lesið tékkneskuna fyrir ofan til að vita hvað þetta var - átti víst að vera crepes (pönnukaka). Höfum ekki mikla trú á að túristarnir taki sénsinn á þessum. Einhversstaðar er þýðandi í hláturskasti.

Svo er það síðasta prófið hjá Sylvíu núna á mánudaginn, það þýðir að morgundagurinn verður alveg jafn skemmtilegur og dagurinn í dag. Alli greyið er svo píndur til að taka þátt í öllu, spyrja út úr og reyna að reikna dæmin og svona fjör. Hann er örugglega ekkert minna þreyttur eftir þessa helgi. Svo eftir síðasta prófið á mánudag kemur Gaui strax um kvöldið og svo frí fyrir Sylvía í eina og hálfa viku. Getur ekki beðið! Alli greyið þarf víst að vinna. En getur nú huggað sig við Krít í lok júlí. Erum að sjálfsögðu farin að telja niður.

Þá er því lokið í bili,
Sylvía & Alli

fimmtudagur, maí 11, 2006
Þarf ekki að þrífa hjá ykkur?
Lítið að frétta af okkur í bili. Sylvía hefur verið mjög upptekin við að þurrka af þvottavélinni, skipta um á rúminu og skúra undir því í leiðinni.. er að íhuga að fara að umpotta núna. Rétt að taka fram að fyrst þarf hún að kaupa blóm. Jú, það er rétt skilið hjá ykkur prófin byrja næsta þriðjudag.

Annars er lítið sem drífur á okkar daga fram að prófum, skrifum þegar þau eru búin. Enda verður Gaui stóri bróðir kominn í heimsókn þá :-)
Farin að borða,