laugardagur, apríl 29, 2006
Krít

Þá erum við búin að bóka ferð til Krítar í sumar. Já, það er um að gera að ferðast eins mikið og hægt er þegar maður er staðsettur svona í mið-Evrópu. Ætlum sem sagt að fara í lok júlí og dveljast þar í tvær vikur. Markmið ferðarinnar að sjálfsögðu að vera eins löt og hægt er - með áherslu á að liggja á ströndinni eða til að breyta til, á sundlaugarbakkanum.
XAIPETE,
Sylvía & Alli
föstudagur, apríl 21, 2006
París!
Við skötuhjú eyddum páskunum í París og gætum vart verið ánægðari með ferðina. Það verður að viðurkennast að Frakkarnir kunna sko að baka! Við vorum líka dugleg við að fullvissa okkur um að þeir kynnu það allir og heimsóttum því eins mörg kaffihús og bakarí og við gátum. Látum nú myndirnar tala sínu máli..
Alli átti rosalega erfitt með að velja!

Sylvía alltaf jafn hrifin af bleikum trjám!

Alli missti ekki af neinum tækifærum til að grípa einhver frönsk góðgæti (já og hann dýrkar pönnukökur eða crepes eins og Frakkarnir kalla það)!

Sylvía og Herra Eiffel urðu rosa góðir vinir - en hvor er stærri?

Tja, þarna erum við í 300 metra hæð yfir París. Herra Eiffel er kannski aðeins stærri.

VÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁ!!!! Sylvía er alltaf jafn flott!

Ekkert smá flottur staður rétt hjá hótelinu!

Sjáið þið svipinn?

Þeir sem hafa lesið bloggið muna kannski eftir loforðinu hans Alla - þetta er módelið af því sem koma skal!

Louvre safnið er hrikalegt. Við vorum þar inni í 3 tíma og skoðuðum kannski 20% af því!

Fundum þennan skemmtilega pýramída fyrir utan.

Og já, það rigndi líka smá á okkur..

Alla til mikillar gremju þá er þetta liðið sem Sylvía heldur upp á í formúlunni - og já, þeir unnu í fyrra..

Bitinn með bitanum!

Rómantísk sigling á Signu..

..alveg þangað til þessi gaur ákvað að stilla sér beint í veg fyrir okkur!

En við fundum okkur bara eitthvað betra að gera!

Au revoir,
Alli & Sylvía

fimmtudagur, apríl 06, 2006
Vissir þú að...

- Prag er oft kölluð fallegasta borg Evrópu!
- Tékkland er ekki lengur hluti af Tékkóslóvakíu (full ástæða til að minna fólk á það enda Tékkóslóvakía ekki til)!
- Þeir hafa miklu flottari gæludýrabúðir, það er til dæmis hægt að kaupa litla apa!
- Hitinn fer oft yfir 30°C á sumrin og þykir ekkert tiltökumál!
- Hitinn fer oft undir -15°C á veturnar og þykir ekki heldur neitt tiltökumál!
- Það eru villtar leðurblökur í almenningsgörðunum!
- Hæsta fjall Tékklands heitir Snezka og er 1602 metrar – og við höfum klifrað það!
- Það er pöbb á toppinum!
- Tékkland er með hættulegri löndum Evrópu til að keyra í!
- Lofthæðin í íbúðinni hjá okkur er 3,30 metrar!
- Í Tékklandi snúa allir ljósarofar öfugt – hvað er það???
- Að ef þú ætlar að skipta klinkinu þínu úr sparibauknum þá kostar það 260kr!
- Þú þarft samt sem áður að sortera klinkið sjálfur áður en þú ferð í bankann!
- Tékkar vita ekki hvað uppþvottabursti er nota aldrei slíka!
- Tékkar kaupa frekar G-mjólk heldur en venjulega og drekka bara eins og ekkert sé!
- Að í Tékklandi færðu bara dökkbrúnt/grátt brauð sem er vont!
- Þó svo að suðusúkkulaðið þeirra bragðist bara ágætlega þá verður það vont þegar maður býr til heitt súkkulaði – hvernig virkar svoleiðis?!?
- Alli og Sylvía eru búin að búa í Tékklandi í heilt ár í dag!