mánudagur, janúar 23, 2006

 

-18°C ALMÁTTUGUR

Get ekki annað en sett inn smávegis færslu vegna þess hversu HRIKALEGA KALT er í Prag í dag. Það voru -18°C þegar ég fór í vinnuna í morgun og ég er bara ekki viss um að ég hafi stigið út í slíkan kulda áður, ever!

Bíllinn var alls ekki sáttur við þetta og þrátt fyrir að starta sér fljótt og vel þá þurfti ég að eyða 10 mínútum í að hita hann upp þannig að olíuljósið kviknaði nú ekki í hvert skipti sem ég snerti bensíngjöfina. Geri ráð fyrir að olían hafi verið orðin svo þykk í kuldanum að hún hafi ekki skilað sér nógu hratt inn á vélina!

Já, mig rámar sællar minningar í að hafa sett inn færslu um hitann í Prag einhverntíman. Ég vona svo sannarlega að sá tími komi aftur ;-)

Bestu kveðjur,
Alli

P.S. Sylvía: Við verðum að byrgja okkur upp af heitu súkkulaði!

fimmtudagur, janúar 19, 2006

 

Mont mont og meira mont!

Jæja, loksins loksins hafa okkur borist einkunnir frá skólanum hennar Sylvíu. Og þar sem henni gekk vel fannst okkur að sjálfsögðu tilvalið að smella þessu á síðuna - tja svo spilaði líka þátt að Alli hafði í hótunum með að setja sjálfur inn færslu og hann er svo hátíðlegur að ég tók enga sénsa.

Einkunnirnar eru sem sagt gefnar á forminu A - F. Eftirfarandi eru einkunnirnar sem sagt (og eins og þær útleggjast samkvæmt íslensku kerfi fyrir aftan):
Meðaleinkunn: 9,4

Sem þýðir að nú bíð ég bara spennt eftir pakka þar sem Alli var búinn að lofa mér óvæntri gjöf ef ég fengi þrjú A eða fleiri!

Bæ í bili,
Einstein & Alli

sunnudagur, janúar 15, 2006

 

Pajama chef

Matreiðslumeistarar - já, við gerðum þá uppgötvun í kvöld að við erum framúrskarandi kokkar. Við elduðum nautafilet með tilheyrandi. Ef það hafið séð Hómer slefa í Simpsons þá vitið þið hvernig við erum núna! Mmmmmmm beef filet....

Annars er vandamál í gangi hér hjá okkur Pragbúum. Alli upplifði nefninlega svolítið magnað fyrirbrigði um daginn - náttbuxur. Já, ég ákvað að fá Alla til að fá sér náttbuxur því ég nennti ekki lengur að hlusta á hann kvarta um að hann ætti ekkert til að fara í þegar ég henti mér í mín náttföt - þegar við erum löt fram í stofu. En núna neitar hann að fara úr þeim og ég fæ hann varla út lengur. Hefur einhver góð ráð hvernig ég get sannfært hann um að fara út? Nammi virkar ekki einu sinni! Góð ráð dýr því ég þarf að sannfæra hann um að fara í vinnuna á morgun.

Annars er lítið að frétta af okkur. Bíðum enn eftir að fá úr prófunum mínum, þeir eru ekkert að flýta sér hérna. Svo byrjar skólinn ekki fyrr en 6 feb. þannig að ef einhverjum leiðist á Íslandi þá þigg ég félagsskapinn!

Kveðja,
Sylvía & Pajamaman

föstudagur, janúar 13, 2006

 

Bananaterta!

Vorum að prófa nýja uppskrift af bananatertu - bananar, rjómi, kókosmjöl og súkkulaði. What can go wrong?!? Allir velkomnir að koma og fá að smakka!

Kveðja,
Bakarameistarar

miðvikudagur, janúar 04, 2006

 

Gleðilegt nýtt ár!

Jæja þá erum við skötuhjú aftur komin til Prag eftir alltof stutta heimsókn á klakann. Því miður náðum við ekki að hitta alla sem við vildum. Tíminn bara hreinlega gufaði upp. Við komumst að þeirri niðurstöðu að við værum greinilega búin að vera alltof lengi erlendis þar sem að við fengum tvær myndabækur um Ísland í jólagjöf - við munum sko alveg hvernig það lítur út!



Verðum víst að biðjast afsökunar á því að þetta árið sendum við engin jólakort. Sylvía var í prófum þar til rétt áður en við fórum á klakann og Alli hefði hvort eð er aldrei munað eftir þeim. Lofum að bæta úr þessu á næsta ári og vonum að enginn hafi orðið fyrir alvarlegri tilfinningaröskun vegna þessa.

Það er nú alltaf gott að að komast heim í eigið rúm eftir að dveljast annars staðar. Maður upplifði það nú eiginlega fyrst núna að Tékkland væri að fara aftur heim. Þó svo það hafi verið rosa erfitt að kveðja familíurnar aftur. En home sweet home og þegar til Tékklands var komið var allt við sama heygarðshornið þar. Jú það var búið að stela hjólkoppunum af bílnum, þannig að allt var eins og það átti að vera. Það er svo mikil þjófamenning hérna að við erum sannfærð um að þýfi seljist á hærra verði en beint úr búðinni!

Nýárskveðja,
Sylvía & Alli

This page is powered by Blogger. Isn't yours?