föstudagur, desember 15, 2006

 

Köben

Jæja, þá sitjum við á flugvellinum í Köben og bíðum eftir Guðjóni. Merkilegt hvernig fólki tekst að vera seint meira að segja á milli landa!

Nei, það er víst ekki alveg svo einfalt. Af tæknilegum ástæðum er Guðjón að koma með öðru flugi en við frá Prag en verður síðan samferða okkur til Íslands.

Vart hægt að lýsa spennunni en okkur er farið að hlakka alveg ofboðslega til að komast heim á klakann. Við treystum á að það sé norðan gaddur og stórhríð, það væri alveg æðislegt. Ekki verra ef það er þokkalega hvasst! Jú, síðan erum við alveg komin í þörf fyrir að sjá jólaljósin en Tékkarnir eru ekkert í þeim bransa - allavega ekki í heimahúsum.

Röltum þó í gær niður í gamla bæinn og þar er gamla torgið alveg rosalega flott og höfum við aldrei séð jafn flott jólatré. Því miður vorum við ekki með myndavél með okkur en hérna er mynd frá því í fyrra (jólatréð núna er samt MIKLU flottara).



Við lendum síðan á Íslandi klukkan 15:30 og viljum biðja þá sem hafa ekki þegar bókað tíma að gera slíkt hið fyrsta - fyrstir koma fyrstir fá! Nei að öllu gamni slepptu þá lítur út fyrir að þessir "frídagar" verði vel nýttir. En allt er þetta frábært fólk sem við erum að fara að hitta og viljum endilega hitta sem flesta.

Jólakveðja frá Kastrup,
Alli & Sylvía

P.S. Ef einhver er með góða leið til að drepa 3 klst á Kastrup þá endilega látið ljós ykkar skína!

Comments:
Þegar verið er í Köben þá er bara tvent til ráða!!
Ef tími er til þá á að fara niður í bæ og heimsækja veitingastaðin Peder Oxe. Þar er framreidd alveg sérlega góð fiskisúpa.
Ef ekki er tími til að fara í bæinn er bara best að vera á flugvellinum og fá sér að borða á Hereford Beef.
Eins og þig sjáið snýst þetta um mat hjá mér (skýrir kannski vaxtarlagið).
Verð á flugvellinum kl. 15:30 og sæki ykkur.
Pabbi
 
Skrifa ummæli

<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?