sunnudagur, október 15, 2006

 

Berlín

[Eftirfarandi færsla er frá 15. október, ekki sett inn fyrr vegna tæknilegra örðugleika]

Það var sem sagt ákveðið að skella sér strax fyrstu helgina sem Gaui bróðir var hérna til Berlínar. Svo það var byrjað að leita að hóteli á fimmtudeginum.. fórum á laugardagsmorgni. Það var nú eitthvað lítið í boði - nema við værum til að borga 50.000kr. eða meira fyrir eina nótt. Loksins fannst hótel, því miður ekki í miðbænum en það var svo sem ekki mikið mál að nota tram og metro (svo lengi sem Alli og Gaui fengu engu að ráða.. þeir vildu alltaf fara í vitlausa átt).

Þegar við komum svo á hótelið förum við Alli inn á herbergið okkar - sem var ekki svo smátt. Það voru tvö herbergi inn í því og í heildina sex rúm! Gaui bróðir var svo með þrjú rúm í sínu herbergi - svo við vorum með þrjú rúm á mann, alveg nauðsynlegt að sjálfsögðu.

Við eyddum nú ekki miklum tíma á þessu hóteli - fórum beint niður í bæ og skoðuðum svona það helsta. Hérna eru svo myndirnar..

Hérna er bygging sem múnar á mann..


Hérna erum piltarnir á Alexanderplatz..


Þetta er líka á svæðinu við Alexanderplatz..


Síðan fundum við þetta skemmtilega hlið (gaman að taka fram að rétt hjá þessu hliði er hótelið sem Wacko Jacko sveiflaði barninu sínu yfir svalarhandriðið)..


Fundum svo þennan garð sem okkur fannst skemmtilegur..


Rétt hjá garðinum fann Alli svo bíl sem honum langar í, það fór nú smá stund í að skoða kvikindið..


Og önnur mynd af bílnum..


Svo fundum við þennan stóra fína garð rétt hjá Brandeburghliðinu..


Guðjón var gríðarlega ánægður með garðinn..


Pose..


Svo seinni daginn var farið og smellt sér að sjá nýrri hluti á Potzdamerplatz - þar er allt fullt af nýjum húsum. Enda var ekki hægt að byggja á því svæði þar sem Berlínarmúrinn fór þar þvert yfir.. bögg!


Berlín reyndist bara ágætasta borg og ekki ólíklegt að maður skelli sér bara aftur þegar þeir drengir eru ekki að vinna. Annars er næsta ferð nú þegar skipulögð og við sem sagt á leiðinni til Rómar helgina 10-12 nóvember. Oh my oh my - það verður sko verslað!

Kveðja,
Sylvía & Alli (& Guðjón)

Comments:
Þvílíkt flakk á ykkur alltaf!!! Vinkona mín var í Róm í síðustu viku og hún sagði að borgin er ÆÆÆÐI!!! Svo njótið ykkar vel!!!
 
Ææ, við Vífill förum til Rómar 16-20. nóvember. Það hefði verið gaman ef ferðirnar hefðu lent á sama tíma.

Skemmtið ykkur!

Sigga
 
Neiiiiii, þetta er rosalegt! Við vorum einmitt að veltast með þessar tvær helgar og pæla hvor væri betri og síðan endaði það svona út af vinnunni aðallega.

Næst þá látum við vita af ferðaplönum með betri fyrirvara! ;-)

Skemmtið ykkur einnig frábærlega! Bið að heilsa öllum heima.

Bestu kveðjur,

Alli
 
Skrifa ummæli

<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?