laugardagur, september 23, 2006
Salsa
Við skötuhjú skráðum okkur í salsa núna í ágúst og fórum svo í fyrsta tímann í gærkveldi. Hæstánægð með tímann enda skemmtum við okkur mjög vel - getum samt ekki annað en vorkennt kennaragreyjunum. Það tók þá rúman klukkutíma að kenna okkur grunnsporin. Eftir að hafa náð grunnsporunum var farið í flóknari hluti. Oh my, að reyna að dansa þessi grunnspor á meðan Alli reynir að kyrkja mig með mínum eigin höndum - tja, ekki svo létt skal ég segja ykkur.
Við náttúrulega litum nokkurn veginn svona út..

Maður lifir og lærir,
Sylvía (&Alli)
Við náttúrulega litum nokkurn veginn svona út..

Maður lifir og lærir,
Sylvía (&Alli)


