fimmtudagur, ágúst 31, 2006
Aftur í skólann..
Fyrsti dagur skóla hjá mér – gríðarlegt fjör alltaf hreint. Af fimm fyrstu tímunum mínum er nú þegar búið að cancela þremur. Lötu kennarar!

Hitti milli tíma vinkonu mínu sem er á annarri braut en ég (og þar af leiðandi ekki með mér í tímum) og viti menn. Hún lenti með annarri íslenskri stelpu í tíma. SAY WHAT? Ha, er ég ekki lengur sérstaki Íslendingurinn.. damn it!
Næst hitti ég kennara sem kenndi mér á fyrstu önn – hann var nú ekki lengi að segja mér frá því að hann væri að kenna öðrum Íslendingi – stelpa sem heitir Heiða. Þetta er nú bara snilld, ætli maður verði ekki að reyna að hafa upp á henni. Úfff – ég gæti hugsanlega talað ylhýra móðurmálið við einhvern annan en Alla. Get vart lýst því hvað það hljómar þægilega.
Jæja, farin að læra,
Sylvía