föstudagur, júní 23, 2006

 

Sporty Spice

Nú er mín á fullu í tennis, hitti tenniskennarann á eyju í Vltava ánni (Moldá fyrir Íslandinga). Til þess að komast þangað þarf ég að ganga þvert í gegnum miðbæinn – sem sagt niður Wenceslas square, sem fyrir þá sem ekki þekkja til þá er þetta eins Laugavegurinn á sterum og ekki er hægt að komast að á malbikinu fyrir túristum.

Allt í lagi með það – ágætis labb út af fyrir sig. En núna síðast var um 30 stiga hiti. Það þýðir að maður smellir sér í stuttbuxurnar, íþróttatoppin og strigaskóna. Oks – en þar sem það er sól og ég er með leiðindartopp þessa dagana þá nota ég derhúfu til að halda hárinu aftur. Eða með öðrum orðum ég leit út eins og sporty spice að labba niður í bæ.

Sem betur fer var ég með leðurtöskuna mína á öxlinni til að toppa útlitið – einhversstaðar verða lyklar, sími og peningaveskið að vera. Agalega var ég meðvituð um þetta útlit á mér, og leið hreint ekki svo þægilega.

En ég hafði gönguna af og mætti í tímann. Sem betur fer gekk betur en síðast og ég fylgdi almennilega eftir – axlirnar 90 gráður, alveg nauðsynlegt í tennis. Þegar tíminn var búin lýsir kennarinn því yfir að ég sé öll að koma til og að þetta hafi verið reglulega góður tími hjá mér.

Ég labbaði heim, stolt með derhúfuna mína. Íhugaði meira að segja nokkur handahlaup og svona spörk út í loftið til að undirstrika sporty spice útlit mitt.

Núna set ég að sjálfsögðu markið á Önnu Kournikovu, það er vera frekar döpur í tennis en fá hins vegar flotta auglýsingasamninga :-)

Kveðja,
Sylvía

Comments: Skrifa ummæli

<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?