laugardagur, maí 20, 2006
Crap á matseðlinum
Búin að vera frábær helgi hérna í Prag. Það vill nefninlega þannig til að Sylvía fékk svo kallað take-home final í stærðfræði. Þar sem að þessi stærðfræði er ekki fyrir hvítan kött þá eyddi Sylvía meirihluta föstudags í þetta og við saman svo í dag búin að eyða nánast öllum deginum í dæmin. Gaman að segja frá því að þetta eru bara átta dæmi. Við erum búin með sjö, bara eitt eftir. Tja, já ef einhver er góður í að finna critical points og classify them þá endilega láta okkur vita því við erum með eina "skemmtilega" jöfnu í boði.

Annars var nú gaman að fara út að borða í dag. Skelltum okkur á nýjan stað í hádeginu til að fá okkur eitthvað létt í magann. Leist okkur svona agalega vel á staðinn þar til við sáum eftirrétta matseðilinn.. vorum þá aðeins hikandi. Sylvía rak augun í einn rétt: "Crap with banana and caramel sauce". Ehmm.. hljómar ekki vel! Þarna var gott að geta lesið tékkneskuna fyrir ofan til að vita hvað þetta var - átti víst að vera crepes (pönnukaka). Höfum ekki mikla trú á að túristarnir taki sénsinn á þessum. Einhversstaðar er þýðandi í hláturskasti.

Svo er það síðasta prófið hjá Sylvíu núna á mánudaginn, það þýðir að morgundagurinn verður alveg jafn skemmtilegur og dagurinn í dag. Alli greyið er svo píndur til að taka þátt í öllu, spyrja út úr og reyna að reikna dæmin og svona fjör. Hann er örugglega ekkert minna þreyttur eftir þessa helgi. Svo eftir síðasta prófið á mánudag kemur Gaui strax um kvöldið og svo frí fyrir Sylvía í eina og hálfa viku. Getur ekki beðið! Alli greyið þarf víst að vinna. En getur nú huggað sig við Krít í lok júlí. Erum að sjálfsögðu farin að telja niður.

Þá er því lokið í bili,
Sylvía & Alli