föstudagur, maí 26, 2006

 

Ambiente

Allt gott að frétta úr Prag. Sylvía búin í prófum.. því miður engar einkunnir komnar strax. Einnig er Gaui kominn í heimsókn. Hann hefur nú komið til Prag áður en virðist ekkert kannast við nema botninn á bjórglösum og eitt sund. Þóttist nú kannast við Karlsbrúna en við drögum það nú í efa.

Sylvía og Gaui hafa verið í tennis núna og Sylvía strax sannfærð um að hennar tíma sé best varið í þetta nýja sport. Hún er því að pæla að gerast atvinnumaður í tennis og hætta þessu háskólaveseni.. eða ekki.

Annars vorum við að koma inn úr mat. Rif, vængir, súkkulaði fondue og fersk jarðaber með ís. Mmmmmmmm.... Fátt sem toppar þennan veitingastað. Liggjum því á meltunni núna. Erum að skoða netið fyrir morgundaginn en við stefnum á að rúlla til Vínar, ekkert okkar hefur áður komið þangað. Því miður hefur ekki tekist að finna Pizza Hut stað þar, höfum gert dauðaleit á netinu. Að sjálfsögðu forgangsröðum við rétt!



Jæja, ætlum að horfa á Unni Birnu detta,
Sylvía & Alli (& Gaui)

Comments:
Hahaha, alltaf jafn fyndið að sjá hana detta! En hey, þið getið byrjað að plana heimsókn til mín í september til BCN ;) Fer pottþétt í september :) :) :) Víííí!
 
Skrifa ummæli

<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?