fimmtudagur, apríl 06, 2006
Vissir þú að...

- Prag er oft kölluð fallegasta borg Evrópu!
- Tékkland er ekki lengur hluti af Tékkóslóvakíu (full ástæða til að minna fólk á það enda Tékkóslóvakía ekki til)!
- Þeir hafa miklu flottari gæludýrabúðir, það er til dæmis hægt að kaupa litla apa!
- Hitinn fer oft yfir 30°C á sumrin og þykir ekkert tiltökumál!
- Hitinn fer oft undir -15°C á veturnar og þykir ekki heldur neitt tiltökumál!
- Það eru villtar leðurblökur í almenningsgörðunum!
- Hæsta fjall Tékklands heitir Snezka og er 1602 metrar – og við höfum klifrað það!
- Það er pöbb á toppinum!
- Tékkland er með hættulegri löndum Evrópu til að keyra í!
- Lofthæðin í íbúðinni hjá okkur er 3,30 metrar!
- Í Tékklandi snúa allir ljósarofar öfugt – hvað er það???
- Að ef þú ætlar að skipta klinkinu þínu úr sparibauknum þá kostar það 260kr!
- Þú þarft samt sem áður að sortera klinkið sjálfur áður en þú ferð í bankann!
- Tékkar vita ekki hvað uppþvottabursti er nota aldrei slíka!
- Tékkar kaupa frekar G-mjólk heldur en venjulega og drekka bara eins og ekkert sé!
- Að í Tékklandi færðu bara dökkbrúnt/grátt brauð sem er vont!
- Þó svo að suðusúkkulaðið þeirra bragðist bara ágætlega þá verður það vont þegar maður býr til heitt súkkulaði – hvernig virkar svoleiðis?!?
- Alli og Sylvía eru búin að búa í Tékklandi í heilt ár í dag!
Comments:
<< Home
Vá heilt ár, fljótt að líða!!!
Til hamingju með það! Megið samt alveg bara koma heim núna...þetta er orðið fínt takk!!!
Til hamingju með það! Megið samt alveg bara koma heim núna...þetta er orðið fínt takk!!!
Kalla og Catia: Úfff - alltof langt síðan ég sá ykkur, vantar rosalega að slúðra!
Sylvía
Sigga og Vífill: Tökum ykkur á orðinu, látið bara vita með hvaða flugi þið komið!
Alli og Sylvía
Sylvía
Sigga og Vífill: Tökum ykkur á orðinu, látið bara vita með hvaða flugi þið komið!
Alli og Sylvía
Er verið að reyna að selja sig til að fá heimsóknir?
Hmm...annars selur þetta nú ekkert of vel; -15 gráður, hættulegt að keyra, leðurblökur, engvir uppþvottaburstar, g-mjólk og vont brauð....
Hins vegar selur þú alveg fjallið, væri sko alveg til í að klífa fjall og fá bjór á toppnum....það væri hægt að kalla þetta fjall ,,toppinn á tilverunni”!!!!!
Hvernig væri svo að kaupa sér apa? Þið mættuð alveg nefna hann í höfuðið á mér!! :-D
Til hamingju með árið ykkar, þið eruð frábær!!!
Kv. Ellan

Elín - hvað annað dytti mér í hug en að nefna apa eftir þér... Ertu ekki á leiðinni annars, kvikmyndaskólinn bíður!
Skrifa ummæli
<< Home