föstudagur, apríl 21, 2006

 

París!

Við skötuhjú eyddum páskunum í París og gætum vart verið ánægðari með ferðina. Það verður að viðurkennast að Frakkarnir kunna sko að baka! Við vorum líka dugleg við að fullvissa okkur um að þeir kynnu það allir og heimsóttum því eins mörg kaffihús og bakarí og við gátum. Látum nú myndirnar tala sínu máli..

Alli átti rosalega erfitt með að velja!


Sylvía alltaf jafn hrifin af bleikum trjám!


Alli missti ekki af neinum tækifærum til að grípa einhver frönsk góðgæti (já og hann dýrkar pönnukökur eða crepes eins og Frakkarnir kalla það)!


Sylvía og Herra Eiffel urðu rosa góðir vinir - en hvor er stærri?


Tja, þarna erum við í 300 metra hæð yfir París. Herra Eiffel er kannski aðeins stærri.


VÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁÁ!!!! Sylvía er alltaf jafn flott!


Ekkert smá flottur staður rétt hjá hótelinu!


Sjáið þið svipinn?


Þeir sem hafa lesið bloggið muna kannski eftir loforðinu hans Alla - þetta er módelið af því sem koma skal!


Louvre safnið er hrikalegt. Við vorum þar inni í 3 tíma og skoðuðum kannski 20% af því!


Fundum þennan skemmtilega pýramída fyrir utan.


Og já, það rigndi líka smá á okkur..


Alla til mikillar gremju þá er þetta liðið sem Sylvía heldur upp á í formúlunni - og já, þeir unnu í fyrra..


Bitinn með bitanum!


Rómantísk sigling á Signu..


..alveg þangað til þessi gaur ákvað að stilla sér beint í veg fyrir okkur!


En við fundum okkur bara eitthvað betra að gera!


Au revoir,
Alli & Sylvía

Comments:
ohhh maaaaaan, öfund,öfund,öfund,öfund :)
mig langar líka til parís :) *snökt* :)
en jamm skemmtilegar myndir :)
 
Ooooh mig langar svo til Paaaaaaaaris! Kannski mar skelli sér ef Barca og Arsenal verða í úrslitum í Meistaradeildinni :0)
Pillaðu þér svo heim! Nenni ekki að hafa þig þarna lengur!!!
 
ÆÐI. París er æði, þið eruð æði....allt æðislegt... hlakka til að sjá fleiri myndir ;o)
 
vá ég var þarna bara nokkrum dögum á undan þér :) á einmitt nokkrar svipaðar myndir af mér og effel og louvre.. og VÁ hvað það er stórt hahaha... guð hjálpi þeim sem nennir að skoða allt safnið á einum degi......
 
Gaman ad lesa bloggsiduna ykkar!
Ja Paris er ein af theim borgum sem hægt er ad heimsækja aftur og aftur og aftur og..... Fæ aldrei leid a henni, en Dunni er langt fra thvi ad vera hrifinn af Fransmønnum! Alltof hrokafullir!!!
Annars takk fyrir sidast, thad var virkilega gaman ad hitta ykkur tho stutt væri. Er a leid i adra skotferd til "TEKKLANDS" eftir ruma viku, verd tha adallega "uti a landi"! Fer til Mariánské Lázně og Karlovy Vary ad skoda SPA hotel og golfvelli - og eg sem veit ekki einu sinni hvernig madur heldur a golfkylfu! -Verd a manudegi i Prag med fulla dagskra - enn ein skodunarferdin um thessa fallegu borg, hver veit nema "guidinn" tali um eitthvad annad en byggingarstil og byggingarlist i thetta sinn? Fer aftur heim a fimmtudegi.
Thid hefdud kannski gaman af ad kikja a bloggsiduna hans Dunna?
"http://gudni.wordpress.com"
Hafid thad alltaf sem best, hver veit nema vid getum fengid okkur saman "kaffibolla eda sukkuladibolla" thegar eg kem?
 
Skrifa ummæli

<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?