sunnudagur, mars 19, 2006

 

Ráðgáta dagsins

Getur einhver útskýrt fyrir okkur hvernig vespa getur skyndilega birst heima hjá manni sprellifandi. Hérna er semsagt sagan: Sylvía og Alli komu heim dag einn og fara inn í eldhús. Rétt er að taka fram að á þessum blessaða degi var snjókoma líkt og undanfarna viku og hiti búinn að vera undir frostmarki frá því fyrir jól. Þegar þau standa inn í eldhúsi sér Sylvía skyndilega eitthvað kvikt fyrir neðan eldhúsgluggann - við nánari athugun kom í ljós að um var að ræða risastóra og vel spræka vespu.

Nú spyrjum við ykkur: Hvernig gat vespan komist inn? Hvernig gat hún verið lifandi á þessum árstíma og afhverju í fjáranum þurfti hún endilega að koma inn til OKKAR?

Allar kenningar vel þegnar,
Sylvía & Alli

Comments:
hahahahahahahaha heyrðu já, hún í dvala, þú að kynda heimilið allsvakalega og aumingjas greyið vespan haldið að það væri komið sumar :)shittt hvað ég hefði panikkað í þínum sporum
 
hahaha! æj þettu er lítil og saklaus kvikindi!
 
Já - kenningin mín var líka að hún hefði sofnað hjá okkur síðasta haust, en geta þær bara lagt sig hvar sem er?
Já Catia, ég veit að þetta er lítið og svona næstum því saklaust en reyndu að sannfæra Alla.. ég er sko sú rólega!
 
En að sjálfsögðu rétt að taka fram að hetjan mín myrti fluguna fyrir mig - stolt af karlinum mínum :)
 
noooh noooh!!!
 
Skrifa ummæli

<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?