miðvikudagur, mars 01, 2006
Bolludagur!
Það var sko bolludagur í Prag þrátt fyrir að kjánarnir sem búa hérna viti það ekki. Þannig að við Alli neyddumst til þess að sjá um bollubaksturinn fyrir hönd Tékklands. En þar sem þeir þekktu ekki siðinn borðuðum við líka bollurnar fyrir hönd Tékklands... mmmmmm!!!Annars saknar maður rosalega saltkjötsins sem við fáum því miður ekki hérna. Við lifum það nú væntanlega af en það þýðir að við munum ekki fasta eins og við gerum fastlega ráð fyrir að allir geri á Íslandi.
Annars er nú ekki svo margt að frétta héðan en gaman að segja frá því að núna er Sylvía byrjuð í jóga á laugardagsmorgnum og þarf því að vakna um upp úr átta og að sjálfsögðu er Alli dreginn fram úr og hent með í ræktina. Nema hvað að jógað er svona að mestu leiti á Tékknesku og hefur þetta því verið meira en bara kennsla í jóga - alltaf gaman að áætla svona cirka hvað kennarinn er að segja. Sérstaklega þegar hún er að lýsa einhverri öndun!
Annars er bara rúmlega sólarhringur í Íslandsför og Sylvía að sjálfsögðu byrjuð að skipuleggja ferðatöskuna, enda alltof skipulögð og "light packer" og það krefst sko skipulags.
Guðjón - áætluð lending er klukkan 15:30 - vinsamlegast ekki gleyma okkur!
Sjáumst vonandi um helgina,
Sylvía & Alli
Comments:
<< Home
Æ sylvía þú ert alltaf svo dugleg :) hvort sem það er að vakna í ræktina, taka reglulega göngutúra, eða baka :) hvort sem tilefnið er bolludagur, afmæli, ekki neitt bara... eða já partýlok og klukkan að ganga 8 um MORGUNINN :) mmmmm hvað var gott að vakna daginn eftir í heita kööku
ótrúlega gaman að lesa bloggið og fylgjast með ykkur dúllum :*
Skrifa ummæli
ótrúlega gaman að lesa bloggið og fylgjast með ykkur dúllum :*
<< Home

