fimmtudagur, febrúar 16, 2006

 

Ísland

Þar sem við eigum svo erfitt með að bíða svona lengi eftir að komast til Parísar höfum við ákveðið að fara í aðra ferð fyrst. Já við ætlum í helgarferð til Íslands! Komum sem sagt á klakann 3. mars og förum strax aftur þann 6. Þetta er nú að vísu í tilefni árshátíðar hjá Creditinfo Group en það vill einmitt svo skemmtilega til að hann Alli vinnur einmitt fyrir þá.


Ísland - ylhýra Ísland

Nú verður náttúrulega reynt að troða inn eins mörgu og hægt er þennan stutta tíma, föstudagskvöld og sunnudagskvöld. En að sjálfsögðu gengur fyrir að sjá Önnu Theodóru litlu frænku Sylvíu (dóttir Möggu frænku) þar sem hún var ekki á landinu um jólin.

Sem betur fer þá hefur Alli endurheimt heilsuna og því búið að afturkalla tappana frá EU sem hann hringdi í til að athuga hvort nokkuð væri um að ræða H5N1.

Hafið þið tekið eftir því hvað við erum dugleg að blogga undanfarið? Viljum nú fá smá credit fyrir - eða eru kannski allir löngu hættir að nenna að kíkja?

Yours truly,
Sylvía & Alli

Comments:
Credit! ú... gaman fyrir ykkur að koma heim! Spurning hvort maður nái ykkur nokkuð á þessum stutta tíma. Skil vel að allir vilja bita af ykkur ;o) sjáum til hvernig liggur á okkur. Hafið það sem allra best!
 
Nei nei, ég skoða ennþá reglulega. Við vorum líka að spá í Grikklandi í sumar, en við ætlum að sjá til með það (þó ekki út af fuglaflensunni).

Sigga (og Vífill)
 
Leitt að missa af þér ljúfan...!
 
Skrifa ummæli

<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?