laugardagur, febrúar 11, 2006

 

Eftir 62 daga

Já það eru bara 62 dagar í að við skötuhjú skellum okkur til Parísar. Við erum búin að bóka flug og hótel og getum ekki beðið eftir að fara. Fyrsta skipti fyrir okkur bæði. Það verða sko rómantískir páskar þetta árið! Hlökkum svo til að standa þarna!



Annars er lítið af frétta af okkur í bili. Alli er lasilíus og því lítið sem ekkert gert þessa dagana. Sylvía byrjuð i skólanum og það lítur út fyrir "fun filled" önn hjá henni - stærðfræði, hagfræði og svo lögfræði ásamt öðrum gríðarlega spennandi áföngum.

Eyðum bara tímanum núna í að skoða ferðir fyrir sumarið - Grikkland situr á toppinum núna en auðvitað er fuglaflensan komin þangað svo eitthvað gæti það skolast til. Alli er náttúrulega svo paranoid yfir öllu svona að hann er nánast farin að ganga með gasgrímu daglega og með dósamat í hanskahólfinu.

Farin að fá okkur heita eplaköku með rjóma - eins og alltaf þá eru allir velkomnir sem vilja sneið,
Sylvía & Alli

Comments:
Halló París!!! Æðisleg borg, ekki spurning!!! Hefði nú viljað fá þig heim um páskana, en en en ...!!!
Looove Caty lady
 
Get heldur ekki beðið - get ég ekki fengið smá hraðkennslu í frönsku hjá þér?
Sylvía
 
Skrifa ummæli

<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?