sunnudagur, janúar 15, 2006

 

Pajama chef

Matreiðslumeistarar - já, við gerðum þá uppgötvun í kvöld að við erum framúrskarandi kokkar. Við elduðum nautafilet með tilheyrandi. Ef það hafið séð Hómer slefa í Simpsons þá vitið þið hvernig við erum núna! Mmmmmmm beef filet....

Annars er vandamál í gangi hér hjá okkur Pragbúum. Alli upplifði nefninlega svolítið magnað fyrirbrigði um daginn - náttbuxur. Já, ég ákvað að fá Alla til að fá sér náttbuxur því ég nennti ekki lengur að hlusta á hann kvarta um að hann ætti ekkert til að fara í þegar ég henti mér í mín náttföt - þegar við erum löt fram í stofu. En núna neitar hann að fara úr þeim og ég fæ hann varla út lengur. Hefur einhver góð ráð hvernig ég get sannfært hann um að fara út? Nammi virkar ekki einu sinni! Góð ráð dýr því ég þarf að sannfæra hann um að fara í vinnuna á morgun.

Annars er lítið að frétta af okkur. Bíðum enn eftir að fá úr prófunum mínum, þeir eru ekkert að flýta sér hérna. Svo byrjar skólinn ekki fyrr en 6 feb. þannig að ef einhverjum leiðist á Íslandi þá þigg ég félagsskapinn!

Kveðja,
Sylvía & Pajamaman

Comments:
hæ hæ... æ ég skoða síðuna ykkar af og til og finnst ég dónarleg að hafa ekki kvittað neitt... gaman að sjá hvað þú ert að gera það gott þarna í útlandinu ;) vertu dugleg að blogga :) Selma Sól ( öldó )
 
Hahaha, náttbuxur eru nottla bara vandamál!!! Hann getur alltaf farið í buxur yfir þær og farið þannig í vinnuna!
 
Ég næ ekki Vífli úr sínum náttbuxum, þannig að ég hef engin ráð :/ Alli, ég var víst búin að lofa þér netfanginu mínu, sendi þér póst bráðlega.
 
Skrifa ummæli

<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?