miðvikudagur, janúar 04, 2006
Gleðilegt nýtt ár!
Jæja þá erum við skötuhjú aftur komin til Prag eftir alltof stutta heimsókn á klakann. Því miður náðum við ekki að hitta alla sem við vildum. Tíminn bara hreinlega gufaði upp. Við komumst að þeirri niðurstöðu að við værum greinilega búin að vera alltof lengi erlendis þar sem að við fengum tvær myndabækur um Ísland í jólagjöf - við munum sko alveg hvernig það lítur út!
Verðum víst að biðjast afsökunar á því að þetta árið sendum við engin jólakort. Sylvía var í prófum þar til rétt áður en við fórum á klakann og Alli hefði hvort eð er aldrei munað eftir þeim. Lofum að bæta úr þessu á næsta ári og vonum að enginn hafi orðið fyrir alvarlegri tilfinningaröskun vegna þessa.
Það er nú alltaf gott að að komast heim í eigið rúm eftir að dveljast annars staðar. Maður upplifði það nú eiginlega fyrst núna að Tékkland væri að fara aftur heim. Þó svo það hafi verið rosa erfitt að kveðja familíurnar aftur. En home sweet home og þegar til Tékklands var komið var allt við sama heygarðshornið þar. Jú það var búið að stela hjólkoppunum af bílnum, þannig að allt var eins og það átti að vera. Það er svo mikil þjófamenning hérna að við erum sannfærð um að þýfi seljist á hærra verði en beint úr búðinni!
Nýárskveðja,
Sylvía & Alli