þriðjudagur, desember 20, 2005

 

Proffinn minn!



Já, vildi bara láta ykkur vita að Sylvía er að rúlla upp þessum skóla sem hún er í. Búin að fá úr einu prófi (hagfræði) og var með A í einkunn og hæst í prófinu!

Yfir & út,

Alli

sunnudagur, desember 18, 2005

 

Veselé Vánoce



Nú er komin jólastemming í okkur! Það kyngir niður snjó hérna, snjóaði allan gærdag á meðan við vorum að redda afganginum af jólakaupunum. Fullkomið veður þegar maður er í svoleiðis leiðangri. Við erum þá búin að redda öllum gjöfum fyrir utan eina og það er ekki enn víst hvað það verður. Erum víst pínu tæp á tíma.

Nú eru einungis fjórir dagar í að við fljúgum á klakann. Erum komin með hörkufiðring í magann. Að vísu gæti það verið af því að við bökuðum jólakökur í alltof miklu magni og erum að reyna að klára þær áður en við förum á klakann.

Að allt öðru þá kláraði Sylvía prófin síðasta föstudag - ekki er þó víst að lokaeinkunnir verði fáanlegar fyrr en eftir jól. Hvað eru þessir kennarar að reyna að gera manni?!?

Mamma og pabbi (Sylvíu) til hamingju með 23 árin í dag - meirihluti ævi ykkar, það er árangur!

Sjáumst eftir nokkra daga,
Sylvía & Alli

This page is powered by Blogger. Isn't yours?