sunnudagur, júní 26, 2005

 

Gestagangur

Jæja, höfum ekki verið sérlega dugleg að skrifa enda búin að hafa gesti undanfarnar tvær vikur. Mamma, pabbi (tengdó) og Matti komu hingað mánudaginn 13. júní. Ferðin byrjaði nú ekki vel þar sem flug þeirra frá Danaveldi var fellt niður - já það var bara hætt við það! Þeim seinkaði því um nokkra klukkutíma en komu þó um miðjan dag. En eins og við skötuhjú segjum "fall er fararheill" (tömdum okkur þann hugsunarhátt eftir fyrstu nóttina hérna :-)

Byrjuðum ferðina á dýragarðinum, við höfðum ekki farið þangað, vorum alltaf að bíða eftir Matta. Garðurinn er hiklaust með flottari dýragörðum og augljóslega mikið í hann lagt. Þar komumst við að því að sæljón eru einstaklega grumpy dýr. Annars var einna skemmtilegast að sjá leðurblökurnar því þær fá að fljúga lausar um í myrkvuðum göngum. Maður getur fengið þær beint í fangið ef maður er fyrir þeim. Þær eru þó mun færari í myrkri en við og því engar áhyggjur að hafa. Sumir voru þó frekar smeykir.

Að sjálfsögðu var borgin gengin þver og endilöng. Fannst okkur öllum þó standa upp úr að fara á hjólabáta á Vltava (Moldá). Þar gátum við farið undir Karlsbrúnna og upplifað Prag á sama hátt og fiskarnir í ánni. Við unga parið vorum að sjálfsögðu mun sprækari og íhuguðum að skutla líflínu til hinna eldri. Mælum að sjálfsögðu með slíkri ferð við alla sem koma til Prag.

Ekki var þó bara skoðað Prag heldur var farið til Kutna Hora en þar má finna eitt það merkilegasta fyrirbæri sem við höfum nokkur sinni séð! Þetta er einvers konar klaustur en að innan er það skreytt með mannabeinum. Fjöldinn er ógnvænlegur, en okkur skilst að á þessum 80 fm eða svo séu um 40.000 beinagrindur - alvöru beinagrindur! Það er nú eiginlega ekki hægt að lýsa þessu með orðum og ekki annað hægt en að verða kjaftstopp. Myndirnar eru einmitt þaðan og athugið að á efri myndinni er beinahrúga fyrir aftan þau sem innihalda tugþúsundir beina.

Eftir að Alli fór aftur til vinnu var farið á ströndina hér í Prag. Þetta var að sjálfsögðu gert í mjög góðu veðri og sást það vel á rauðum bjarma sem umkringdi strandarfara næstu daga.

Vonum að gestirnir hafi skemmt sér jafn vel og við. Erum strax farin að bíða eftir næstu gestum.

Over and out,
Sylvía & Alli

miðvikudagur, júní 08, 2005

 

Crazy weather

Við höfum komist að þeirri niðurstöðu að á Íslandi er mjög takmarkað veður. Maður þekkir bara rigningu, snjó og rok þaðan. Hérna er sko eitthvað nýtt af nálinni. Það er ekkert sjaldgjæft að upplifa þrumur og eldingar hér. En við upplifðum þó eitt það magnaðasta eftir að við fluttum hingað núna nýlega.

Það var nefninlega 30°C hiti úti en skýjað. Alli að keyra heim úr vinnunni og Sylvía heima. Alli var einmitt nýbúinn að hafa orð á logninu en þegar ég leit út fannst mér rosalega mikill vindur, tréin í garðinum nánast á hliðinni. Þá kom haglél - já, í þessum 30°C kom haglél og grenjandi rigning - ekkert íslenskt sull. Ekkert svona íslenskt haglél heldur voru höglin á stærð við vínber og upp í golfbolta! Alli var að keyra og vissi ekki hvaðan á sig stóð veðrið (einstaklega skemmtilegt orðalag í þessu tilfelli) því það drundi svoleiðis í bílnum og hann upptekinn við að sveigja fram hjá heilu og hálfu trjánum sem fuku á veginn. Eins og þið getið ímyndað ykkur var fólk náttúrulega fljótt að koma sér í skjól enda ekkert grín að vera rotaður af hagli!

Þegar nær dró heimilinu hafði myndast árfarvegur á vegunum og þar sem við erum ekki á Hummer átti litla greyið (Golfinn okkar) erfitt með sig og ætlaði varla að ná að klára ferðina. Þetta hafðist þó að lokum.
Sylvía var heima og um leið og hún sá hvað í stefndi með veðrið var hún fljót að ná í myndavélina (vissum að þið mynduð ekki trúa þessu án mynda) og búa til sönnunargögn. Eigum líka videoclip sem hægt er að skoða hér, verið með hljóðið á. ATH enn og aftur - það var 30°C þegar þetta var tekið!

Annars hefur lítið á daga okkar drifið síðan síðast. Erum bara að njóta þess að búa í útlandinu. Svo eru bara 5 dagar í fyrstu gestina okkar :-) Mamma, pabbi og Matti alveg að koma - vantar bara Gauja og Brand.

Kveðja,
Sylvía & Alli

This page is powered by Blogger. Isn't yours?