mánudagur, apríl 25, 2005

 

Matur

Þá erum við byrjuð að elda. Fórum í gær og leituðum uppi potta og pönnur, það reyndist erfiðara að finna en við áætluðum en gekk þó upp að lokum. Nú getum við því loksins byrjað að elda. Það er þó öllu erfiðara að finna rétt hráefni. Ef einhver veit hvað eftirfarandi er á tékknesku endilega látið okkur vita: púðursykur, kartöflumjöl og maísenamjöl.

Annars er það helst í fréttum að við erum búin að kaupa sófa :-) Fundum þennan glæsilega sófa í einhverri húsgagnavöruverslun sem við tókum eftir fyrir algjöra tilviljun. Eftir langa leit höfum við komist að þeirri niðurstöðu að Tékkar eru upp til hópa vita smekklausir. Það á þó alls ekki við byggingarnar þeirra, þar verðum við Íslendingar víst að játa slaka frammistöðu.

Já, svo er náttúrulega hæst í fréttum að loksins hefur Sylvía fengið það viðurkennt.. hún er VSP (næstum því það sama og VIP), já VSP stendur nefninlega fyrir Very Sexy Person. Þetta kom í ljós þegar við skelltum okkur á einn klúbbinn hérna, þá fengu allir armbönd og á armbandinu hennar Sylvíu stóða sem sagt Very Sexy Person. Á Alla armbandi var bara logo staðarins.

Gæludýrabúðirnar hérna eru snilld! Við fundum apa í einni slíkri og erum byrjuð að safna. Hann er frekar lítill með langt skott og ótrúlega mannlegur í töktum. Annars er einn stór galli á dýrabúðunum hér, þar eru seldar risastórar kóngulær. Maður er að skoða búrin og litlar sætar kanínur svo er allt í einu kónguló á stærð við kiwi (er sko ekki að ýkja) í einu búranna. Já Sylvía hefur fengið ófáar matraðirnar eftir slíka reynslu. Annars er svolítið skrítið að sjá mýs til sölu hérna, annars vegar sem gæludýr og hins vegar sem fæðu fyrir slöngur sem einnig er nóg af í búðunum. Ætli þessi skrímsli sleppi aldrei út?!?

Jæja ætlum að fara að horfa á Groundhog day (Sylvía fékk að velja mynd),
Sylvía & Alli

fimmtudagur, apríl 21, 2005

 

Brúmm brúmm!

Já, mikið rétt. Við erum loksins komin með bíl og getum því týnst á miklu stærra svæði en áður. Það tókst ágætlega í gær. Vorum á leið í IKEA samkvæmt korti sem við höfðum fjárfest í en enduðum út af kortinu (ath. kortið á að þekja alla borgina!). Þetta hefði nú ekki verið svo slæmt nema fyrir það að allt í einu fór olíuljósið að blikka! Nú voru góð ráð dýr. Næsta sjáanlega mannvirki var hjólhýsi og erfitt að leiðbeina leigubíl til að koma þangað.

Eftir að hafa mælt olíuna á bílnum var ákveðið að reyna að starta á ný. Ekkert ljós kviknaði og keyrt var af stað á ný og viti menn, við enduðum í IKEA. Að vísu rétt fyrir lokun og því sprettað í gegnum búðina. Þeir sem farið hafa í IKEA átta sig á hvað það geta verið mikil vandræði að mæta rétt fyrir lokun – tekur fleiri mínútur að bögglast í gegnum alla búðina áður en maður kemur að kössunum!

Annars er ekkert grín að keyra hérna í Prag. Á Íslandi þykir stæði ekki boðlegt nema að það séu a.m.k. 150 cm fyrir framan OG fyrir aftan bílinn. Hérna þykir bara nokkuð gott ef það eru 15 cm sitthvorum megin við bílinn og léleg nýting ef meira er. Síðan eru þeir ótrúlega hrifnir af einstefnugötum – allt upp í 5 akreina einstefnugötur. Þannig ef maður tekur eina vitlausa beygju getur maður lent í því að keyra fleiri kílómetra áður en hægt er að rétta sig af á ný (við ættum nú að þekkja það).

Meðan við munum! Allir eiga að krossleggja fingur fyrir Sylvíu næsta föstudag klukkan 10:00 (8:00 að íslenskum tíma). Hún er að fara í viðtal hjá háskólanum sem sótt var um í og þetta þarf að ganga vel. Við erum búin að rölta hjá skólanum og þetta lítur mjög vel út, rétt hjá Karlsbrúnni. Reyndar er smá vandamál. Sylvía fór þangað með einhver gögn fyrr í vikunni og það reyndist meira en að segja það að komast inn. Hurðin er eitthvað ægilegt kastalahlið sem er ekkert fyrir meðalmanninn að átta sig á hvernig á að komast í gegnum. Það verður því að krossleggja líka 5 mínútum fyrr að hún komist inn í skólann ;-)

Síðan ætlum við að fara að taka okkur á í blogginu. Fengum smávegis skammir fyrir að vera ekki nógu dugleg að uppfæra. Viljum þó segja okkur til málsbóta að við erum búin að vera á hvolfi við að standsetja heimili. Höfum ekki einu sinni fundið sófa í stofuna enn þá þannig hún er enn galtóm. Einnig kom í ljós að við erum með bloggið vitlaust stillt þannig aðeins þeir sem eru skráðir meðlimir blogspot geta commentað (skilið eftir skilaboð) fyrir neðan hvert innlegg hjá okkur. Úr þessu verður bætt í snarhasti! Catia – þakka ábendinguna ;-)

Biðjum að heilsa í allar áttir,
Alli & Sylvía

fimmtudagur, apríl 14, 2005

 

Sjónvarpið komið!

Já, nú getur Alli tekið gleði sína á ný eftir margar vansvefta nætur án sjónvarps!

Sökum húsgagnaleysis í stofunni er svefnherbergið nú þakið snúrum við litla ánægju hússtýru.
Reyndar er lítið hægt að horfa á því allar myndir og þættir í tékknesku sjónvarpi talsettar og okkar DVD myndir allar í kassa hjá tollinum. Við erum ekki hrifin af tollinum.

Merkur áfangi náðist í dag, Sylvía fann góðan eftirrétt á tékkneskum veitingastað og það vill svo til að hann er bara á næsta horni. Hingað til hefur verið lifað á Friday’s eftirréttum. Alli hefur þó blendnar tilfinningar gagnvart þessari nýju uppgötun þar sem hann getur lítið gert til að stöðva óhemjuna sem hleypur í Sylvíu þegar um eftirrétti er að ræða.

Annars lítur allt út fyrir að við fáum kassana okkar frá tollinum á morgun og þá ekki farið úr húsi heldur bara horft á sjónvarp.. fái Alli að ráða einhverju þar sem við keyptum heimabíókerfi líka.

Jæja, lítið annað í fréttum og við farin að horfa á Tékkana bulla í sjónvarpinu,
Sylvía & Alli

þriðjudagur, apríl 12, 2005

 

Veik í Prag

Jæja, ekki byrjaði það glæsilega fyrstu nóttina í nýjum heimkynnum. Sylvía alveg að hengjast með hita og uppköst og Alli með aðeins vægari útgáfu af sömu einkennum. Við erum svo ALFARIÐ að treysta á að fall sé fararheill!

Við erum þó með góðar fréttir! Sylvía fann könguló í dag og spyrja mætti af hverju það eru svona góðar fréttir. Jú, það veit víst á afar lukkulega framtíð í nýjum heimkynnum finnist könguló þar. Þar sem húsbóndinn á heimilinu (að því sem hann telur) var í vinnu var hún handsömuð í glas og hlaupið upp í rúm þangað til einhver gæti stútað dýrinu. Þetta endaði allt vel.

Okkur líður þó afar vel núna og erum farin að njóta þess í botn að vera hérna. Það er æðislegt að labba hérna um hvort sem er á dagin eða kvöldin og enn og aftur skorað á gesti að fara að mæta! Við eigum meira að segja von á gestarúmi á morgun þannig að það er ekki eftir neinu að bíða.

Sylvía er alveg veik – þó ekki á sama hátt og áður var minnst á. Það eiga ALLIR hunda hérna og allt morandi í þessum ferfætlingum. Í garðinum á móti íbúðinni eru óteljandi hundar af öllum stærðum og gerðum í göngutúr með fylgifiska sína. Í miklu uppáhaldi eru fimm svartir hundar sem við sjáum daglega. Þeir eru allir nákvæmlega eins, litlir og loðnir, og eru ótrúlega skondnir saman í hrúgu þar sem greina má hausa og lappir í massavís. Við reynum að ná mynd af köppunum og smella hérna inn. Ekki er vitað hversu lengi verður hægt að halda út án þess að vera kominn með a.m.k. einn slíkan á heimilið – sjáum til.

Talandi um myndavélina þá erum við búin að vera ótrúlega löt við að mynda. Þetta horfir einhvernvegin öðruvísi við þegar maður verður hérna í að minnsta kosti heilt ár. Að vísu hefur tíminn flogið frá okkur og við verið á fullu við að “mixa” nýja heimilið.

Ætli það sé þá ekki kominn tími á að koma sér í rúmið. Þar sem við erum ekki enn nettengd verður þessu smellt inn í fyrramálið og ætli það verði ekki þannig eitthvað áfram. Við munum þó reyna að redda nettengingu og upp frá því ættum við að verða duglegri að blogga.

Mamma (Sigrún): Sylvía kemur á MSN fljótlega!

Farin í rúmið,
Alli & Sylvía

föstudagur, apríl 08, 2005

 

Komin með íbúð!

Eftir að hafa eytt morgninum hjá fasteignasala erum við komin með lykla og alles að íbúðinni okkar. Vantar að vísu ennþá rúm, borð, stóla og tja.. bara allt sem maður þarf á að halda í íbúð. Mikill kostur þó að við erum með uppþvottavél, vantar bara leirtau :-)

Lofthæðin í íbúðinni er nú eitthvað hærri en á Íslandi, líklegast svona þrír metrar. Þó það líti rosa vel út núna er ekki ólíklegt að maður eigi eftir að blóta því þegar það fer að kólna næsta haust, en það er seinni tíma vandamál, erum með KRAFT-gallana í farangrinum.

Eins og allir sannir Íslendingar þá erum við að fara að kíkja í IKEA núna á eftir. Allar hugmyndir að góðum húsgagnaverslunum í Prag eru vel þegnar.

Jæja, ætlum á húsgagnaveiðar,
Sylvía & Alli

fimmtudagur, apríl 07, 2005

 

Alla leið

Þá erum við mætt til Prag!

Það sem kemur okkur mest á óvart er veðrið hérna. Við áttum jú von á að það væri örlítið skárra en "heima" á Íslandi en það er töluvert mikið heitara hérna. Erum búin að vera á röltinu í léttum fatnaði og það er ekkert mál, semsagt hið besta mál. Sylvía brosir út að eyrum :-)

Mikið af fallegum flottum byggingum og allt í skrauti. Unglingar telja sig þó færari en byggingameistarar í þessum efnum og hjálpa fullmikið til við skreytingar að okkar mati.

Morguninn fór í að skoða íbúðir og við erum líklega búin að finna þá einu réttu. Nú er bara verið að víla og díla og kemur í ljós í fyrramálið hvort það gengur allt saman eftir. Að sjálfsögðu er gestaherbergi til staðar og hér með skorað á alla sem þetta lesa að fara að safna fyrir ferð til Prag!

Jæja, ætli það sé þá ekki kominn tími á að rölta út og næla sér í eitthvað gott í svanginn áður en við höldum áfram að skoða borgina.

Bless í bili,
Alli & Sylvía

miðvikudagur, apríl 06, 2005

 

Hálfa leið

Jæja, þá er ferðin hafin! Erum mætt til Svíþjóðar og vitum ekkert hvað við erum að gera - flytja til Prag? Ótrúlegt! :-)

Vorum búin að lofa að smella upp bloggi til að leyfa fólki að fylgjast með okkur og erum að redda því hérna á flugvellinum þar sem við höfum ekkert skárra að gera.

Vorum að tékka á veðrinu úti í Prag og eru þar núna 17°C sem er ekkert nema snilld, það snjóaði þegar við stigum upp í vélina á klakanum. Núna eigum við hvergi heima, en það rætist vonandi úr því á næstu dögum.

Verðum í frekara sambandi,
Alli & Sylvía

This page is powered by Blogger. Isn't yours?