laugardagur, nóvember 26, 2005

 

Thanksgiving


Þá erum við búin að upplifa snjó hérna í Prag. Varla nóg til þess að þekja fermeter en snjór engu að síður. Að sjálfsögðu var myndavélin rifin upp og myndað eins og sjá má. Þar sem að það er farið að kólna þó nokkuð þá eru allir smáhundar hérna í Prag í úlpum. Stundum hvarflar það nú að manni að það sé eytt meira í úlpur fyrir hundana en eigendurna.

Annars var gærkvöldið hörku gott hjá okkur. Ed og Iva, vinafólk okkar hérna, ákváðu að vera með ekta amerískt Thanksgiving. Ed er kani og því alvanur og Iva bjó í sjö ár í Bandaríkjunum. Ed sá víst um eldamennskuna og við fengum að heyra það aftur og aftur fyrst að maturinn heppnaðist vel. Í boði var að sjálfsögðu fylltur kalkúnn eldaður eftir öllum reglum og svo skyldu meðlætið, sem sagt kartöflumús, "gravy", trönuberjasulta (ekki spyrja - þetta var víst algjör nauðsyn) og fylling.

Maturinn var rosalega góður og þegar maður var gjörsamlega búinn að troða sig út kom í ljós að það var líka eftirréttur. Úffff!!! Það er sko ekkert grín að borða á ameríska vísu. Ed og Iva eru samt alveg magnaðir gestgjafar þar sem þau reyndu eins og þau gátu að þröngva afgöngunum upp á alla gesti þegar verið var að fara. Held að þeim hafi bara ekki langað í meiri kalkún. Erum strax farin að bíða eftir Thanksgiving á næsta ári!

Kveðja,
Sylvía & Alli

Comments:
Hæ krakkar.
Ég hefði viljað sjá aðeins meira af textanum, hvað feluleikur er þetta annars með hann? Ánægjulegt að sjá hvað allt er gott og gaman hjá ykkur. Kv. mamma
 
Skrifa ummæli

<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?