miðvikudagur, september 14, 2005

 

Minigolf

Það er einstök upplifun að fara í minigolf í Prag. Við skötuhjúin ákváðum að smella okkur í minigolf einn laugardaginn. Kom okkur á óvart að það reyndist ekkert sérlega auðvelt að finna völl hérna - ágætlega faldir.

Fundum þó einn sem var ágætlega auglýstur og ákváðum að taka einn hring. Það kom fljótt í ljós að Tékkar eiga fleiri fornminjar en Karlsbrúnna. Kylfan var líklega eitthvað sem fengið var frá tímum Stalíns og völlurinn án efa gerður töluvert fyrir hans tíma. Það vantaði ekki - þetta var virkilega flott .. fyrir svona 90 árum. Þarna virtist ekkert hafa verið gert síðan þetta var reist og ekkert viðhald átt sér stað.

Jæja, það þýddi ekki að pæla í því. Boltanum var stillt upp og kylfan munduð. Það sem gerðist svo á sér líklega einhverjar eðlisfræðilegar skýringar en kúlan var svo langt frá því að rúlla í þá stefnu sem kylfan hafði ætlað henni. Brautin reyndist svo arfaskökk og sprungin, enda búin að þola tímana tvenna, að það var lífsins ómögulegt að áætla hvert kúlan færi. Þar sem brautin var steypt og það sem einu sinni hafði líklega verið einhver gervigrasmotta lööööngu gufuð upp var heldur ekki mögulegt að sjá hvar þessar misfellur voru.

Til að gera langa sögu stutta þá var engin forgjöf lækkuð í þetta skiptið. Annars er merkilegt hvernig Tékkarnir eru gagnvart þessu. Við höfðum á tilfinningunni að þarna mættu kannski 3 menn til að spila í hverjum mánuði en samt halda þeir þessu gangandi. Hvernig virkar svona? Þarna þarf að taka upp einhverja kapítaliska hugsun - gengur ekki svona.

Sylvía er svo á fullu í skólanum. Það er bara stærðfræði og meiri stærðfræði. Alli ætlaði að sýna takta úr fyrra námi en kom svo í ljós að hann var búinn að gleyma öllu og Sylvía var mun færari. Alli er núna búinn að kaupa sér reiknivél. Annars er Sylvía orðin ansi gróf í þessu. Ég vaknaði við það einn laugardagsmorgunin að Sylvía var farin úr rúminu. Var eðlilega með áhyggjur af þessu og fór á stúfana til að leita að dömunni. Var hún þá ekki búin að læðast að skrifborðinu og farin að reikna í rökkrinu. Þetta er nú ekki eðlilegt! Hún hefði kannski átt að fara í sálfræðina?

Yfir og út,
Alli & Sylvía

Comments:
hæ hæ ... takk fyrir skilaboðin á barnalandi gaman að heyra frá þér vissi ekki einu sinni að þú værir flutt út! allaveganna þá fylgist ég með þér núna ;) kveðja Sunna www.blog.central.is /su2na
 
Skrifa ummæli

<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?