mánudagur, september 26, 2005
Karlstejn

Síðasta laugardag fórum við í góðra vinahópi til Karlstejn á heljarinnar miðaldarhátíð. Karlstejn er sem sagt smá þorp fyrir utan Prag sem er rosa frægt fyrir kastalann sinn enda er alveg magnað að sjá hann efst uppi í hlíðinni fyrir ofan bæinn. Er það einmitt kastalinn hér fyrir ofan.
Megin þema hátíðarinnar er að fagna uppskeru nýs vínsárgangs og því básar að selja smakk af hinu og þessu safti. Já, við skötuhjú skelltum okkur á vínsmökkunarhátíð, drukkum þó ekki djarfari hlut en Fanta. Ferðafélagar okkar voru þó hörkuduglegir að smakka og af mikilli fórnfýsi drukku alltaf fyrir okkur líka.
Við gerðumst hins vegar rosalega huguð þegar kom að þvi að borða hádegismat. Við fórum á stað þar sem var verið að steikja heilt svín á teini. Sáum t.d. einn við borðið okkar gæða sér á hófunum OOOJJJJ! Það þýðir ekkert að skjóta á okkur með hrútspunga og slíkt þar sem við höfum nú vit á því að borða ekki svoleiðis ósmekklegheit. En þið getið séð á myndinni kjötið sem við fengum, það liggja meira að segja hófar þarna á borðinu og svo er verið að steikja svín í bakgrunninum.En Tékkar eru nú svo skemmtilegir að þetta borða þeir með gráu brauði (þeir borða bara grátt brauð) og svo sinnepi að því ógleymdu að þetta er svo borðað með puttunum. Ekki fyrir dömur með langar neglur, var heila eilífð að þrífa undan nöglunum á mér. En engu að síður var svínið bara gott.

Enduðum svo ferðina á burtreiðum þar sem 5 riddarar kepptust við að sýna listir sínar. Það var ágætis skemmtun en þar sem kynnirinn og knaparnir töluðu alltaf á tékknesku vissum við ekkert hvað var í gangi, en Tékkarnir hlógu voðalega mikið reglulega svo þetta var greinilega stórskemmtilegt svo við fórum sátt heim.
Það sem eftir stóð eftir daginn var það að Sylvía er orðin alveg veik. Hún sér í hillingum fyrir sér að eiga heima í stórum kastala og er farin að pressa mikið á Alla að finna einn slíkan. Alli hefur því legið yfir fasteignablöðunum undanfarna daga en merkilegt nokk þá virðist ekki vera mikið framboð af kastölum þessa dagana. Því stefnir allt í að reistur verði nýr kastali og þar með sá fyrsti á þessari öld. Ef þið vitið af góðri lóð (helst með þokkalegu síki) þá endilega látið vita. Eina sem hefur fundist á þokkalegu verði hingað til er Grímsey en það virðist ekki uppfylla drauma dömunnar.
Farin út að leita að þrælum,
Sylvía & Alli
Comments:
<< Home
Blessaður frændi kíkti á síðuna gott að víta að allt gengur vel.Er að fara að blása mómmu þína á morgun . Hafið það gott kveðja Gunnella
Skrifa ummæli
<< Home

