mánudagur, september 05, 2005
Dobrý den
Já já - við höfum ekki bloggað lengi en við höfum góða ástæðu í þetta skiptið. Hann Alli hefur verið svo upptekinn, sem sagt að vinna í svona 13-14 tíma á dag undanfarna viku og (ótrúlegt en satt) þá hefur þessi klukkutími milli svefns og vinnu ekki farið í að semja blogg. En sem betur fer er þetta mun skárra núna og ég ekki alein alla daga :-)Glæstur skólaferill Sylvíu hefur nú verið hafinn og fer hún eins og hver annar framúrskarandi heimsborgari með Metro (neðanjarðarlest) í skólann á degi hverjum. Þó svo að einstaka óhöpp eins og að taka lestina í vitlausa átt gerist einstaka sinnum. Slíkum skemmtilegheitum fer þó óðum fækkandi.
Sylvíu líst bara ágætlega á skólann enda eitthvað um áhugaverða kennara. Einn kennarinn var starfsmaður CIA á tímum kalda stríðsins og var hann staðsettur í Rússlandi og njósnaði þar fyrir Bandaríkjamenn. Hann sagði frá því þegar hann var að framkvæma svokallað "drop off" og áttaði sig á því að verið var að elta hann. Hann tók sig þá til og gekk um alla Moskvu og hegðaði sér líkt og túristi. Eftir fjögurra tíma göngu vissi hann að Rússarnir væru farnir að haltra því Rússar voru víst afleitir skósmiðir. Þetta þótti víst ein besta leiðin til að losna við Rússa greyin.
Að allt öðru en við fengum rosa góðar fréttir í vikunni því að mamma og pabbi (Húsavík) ætla að koma til okkar þann 29. september. Okkur er að sjálfsögðu farið að hlakka gríðarlega til. Þurfum að vísu að hreinsa kóngulóavefina af gestarúminu.
Stefnum á að vera duglegri að skrifa - sorry Catia þetta er allt að koma.
Nashledanou,
Sylvía & Alli
Comments:
<< Home
hahaha,taka lest í vitlausa átt, vááá það er ógeðslega pirrandi! ég gleymi stundum að fara út úr lestinni, og held bara áfram....
Vó hvað þessi kaka er girnileg sem þú bakaðir.. var búin að gleyma því hvað þú varst alltaf hrikalega dugleg að baka..
Kv. Þórunn
Kv. Þórunn
hehe jaaá alveg rétt... það var nú gaman að vakna upp eftir 24 tíma partýstand við þessa líka fííínu súkkulaðiköku... sem var btw ennþá heit!!! =) =)
bið annars að heilsa til prag.. keep on bloggin bloggin bloggin
Skrifa ummæli
bið annars að heilsa til prag.. keep on bloggin bloggin bloggin
<< Home


