miðvikudagur, júlí 06, 2005
Sylvía byrjuð að keyra
Merkur dagur í aksturssögu Prag í dag - Sylvía byrjaði að keyra. Þar sem Sylvía hefur varla gripið í beinskiptan bíl síðan í ágúst 2003 var þetta nokkuð stór áfangi.Það gekk mjög vel að keyra, það var ekki vandamálið. Kannski fullvel því áður en varði vorum við komin á áður ókannaðar slóðir. Alls ekki innan Prag sýndist okkur og lítið sem benti til þess að við værum að nálgast heimkynnin á næstunni. Að vísu verður Aðalgeir að axla ábyrgð á því þar sem hann var víst kominn undir stýri á þeim tímapunkti. Hann var reyndar sannfærður um að við værum á réttri leið. Þetta væri bara smá sveigur í kringum miðborgina og við myndum líklega enda nálægt flugvellinum áður en við færum til baka. Við enduðum ekki nálægt flugvellinum.
Þetta var þó ekkert gríðarlegt vandamál. Vorum búin að fjárfesta í góðri kortabók (takk mamma Sigrún) og komum okkur því stórslysalaust til baka. Aksturinn hefur þó gengið merkilega vel, a.m.k. meðan maður passar sig á sporvögnunum sem renna hérna fram og til baka án þess að pæla mikið í umhverfinu.Í matardeildinni hefur það gerst að við keyptum stórfurðulegan banana! Því miður gleymdist að taka mynd af dýrinu en þetta var dökkbrúnn banani sem leit út eins og hann væri handónýtur. Það var þó ekki málið - hann var ferskur og leit utan við litinn út eins og venjulegur banani. Annað kom þó í ljós þegar við reyndum að opna hann líkt og venjulegan banana. Hann var alls ekkert á því að ætla að opnast og reyndi eftir fremsta megni að berjast gegn tilraunum þess efnis. Loksins var ráðist á hann með hníf og þá tókst þetta loksins. Hann reyndist þó glerharður og þurfti að nota hníf til að skera bita úr honum. Þegar við svo smökkuðum hann hafði hann þau áhrif að þurrka gríðarlega upp munninn og var eins og meðal túrtappi hefði verið gleyptur :-) Afgangurinn endaði í ruslinu.
Þeir sem muna eftir atriðinu í Me, myself & Irene vita hvað við er átt! Alli er þó sannfærður um að þetta hljóti fólk að vera að tala um þegar það talar um þurr vín.
Adios amigos,
Alli & Sylvía

