sunnudagur, júlí 24, 2005
Köben
Alveg óvænt þá ákvað Alli að koma Sylvíu sinni á óvart í tilefni tveggja ára samveru þeirra. Smelltum okkur til Danaveldis þann 16. júlí og eyddum fjórum dögum á flatlendinu.Að sjálfsögðu var byrjað að fara á Strikið, komumst fljótlega að því að verðlagið norðan við Tékkland er nett geggjun. Borguðum tólfhundruð kall fyrir tvo kakóbolla og muffins - hvernig er þetta hægt? Erum víst orðin vön verðlaginu hérna en ferð á kaffihúsið er í það minnsta helmingi ódýrari. Reyndar varð Sylvía ástfangin af kaffihúsinu þar sem heita súkkulaðið var ótrúlega gott. Tveir súkkulaðikögglar sem bráðnuðu hægt ofan í heitri mjólkinni, gerist ekki betra. Danirnir eru meistarar í þessu kaffihúsadæmi, með kökur og meðlæti í gríðarlegu magni.
Borðuðum um kvöldið á Blue Elephant og mælum með því - jafnvel meira út af stemningunni og umhverfinu heldur en sjálfum matnum, hann var þó fínn. Tökum þó fram ef þið farið, EKKI fá ykkur kókosdrykkinn, hann er alveg skelfilega vondur.
Hittum Elín og Tedda á sunnudeginum og voru þau ofurhress að venju. Myndin hérna til hliðar er náttúrlega af þeim og er mjög lýsandi. Þau drógu okkur á "dýrakaffihúsið", a.t.h. ekki af því það var dýrt, heldur af því þar var allt fullt af uppstoppuðum dýrum! Það var þó stemning í að líta þangað þannig við mælum líka með því (ekki EKKI fara niður á klósettið án fylgdar fullorðinna).Fórum síðan að borða með Elínu og Tedda ásamt Maríu, Emil og Barböru. Sátum á veitingastað við Nyhavn og teljum við þann stað einmitt mest heillandi stað í Köben - alveg must see. Þarna var krökkt af Íslendingum og var það eiginlega allsstaðar sem við komum. Þetta er eitthvað sem er allt öðruvísi en hér í Prag þar sem það gerist kannski á mánaðarfresti (varla það) að maður rekist á Íslending.
Eitthvað fannst okkur Danirnir misskilja tívolíhugtakið. Fórum í hið víðfræga Tivoli við enda Striksins og urðum eiginlega fyrir vonbrigðum. Þetta var mjög fallegt og allt það en í stað þess að vera skemmtigarður með veitingastöðum þá voru þetta veitingastaðir með nokkrum tækjum. Þannig fyrir þá sem eru að leita að mögnuðum tækjum þá skilst okkur að Bakken sé betri. Ef menn eru svo tilbúnir að greiða örlítið meira fyrir leigubílinn þá mælum við með Gardaland á Ítalíu, en það er alvöru græja ;-)Auðvitað kíktum við einnig á slotið hjá Elínu og Tedda - hittum þar einnig kisa sem var náttúrlega aðalatriðið fyrir Sylvíu. Hann var einstaklega feitur og sést flykkið einnig á myndinni hér að ofan. Stórmóðgaður við Alla þar sem hann settist í stólinn sem tileinkaður var kisa en lét það ekki mikið trufla sig. Hlammaði sér bara ofan á lappirnar og kom sér vel fyrir. Elín og Teddi: Núna erum við búin að koma í heimsókn til ykkar, þið skuldið okkur heimsókn.
Ákváðum að kíkja til Christianiu en komumst að því að við erum algerir heiglar :-) Entumst þarna inni í örstutta stund en vissum eiginlega ekkert hvað við áttum að vera að skoða og hvað við máttum í raun skoða. Biðum bara eftir að einhver rændi okkur og læsti inni í kjallara. Þetta var ekki alveg að gera sig og ákváðum að koma okkur aftur til siðmenningarinnar. Hvað höfum við svo sem að gera í Christianiu - við sem förum ekki einu sinni í ÁTVR.
Að lokum, þá urðum við vitni að stórglæp. Sátum á kaffihúsi að bíða eftir fluginu okkar til Tékklands og tók þá Alli eftir að einhver settist á brún gosbrunns fyrir utan kaffihúsið. Byrjaði sá hinn sami að hella úr kókflösku ofan í gosbrunninn og var hinn grunsamlegasti við þetta allt saman. Forðaði hann sér síðan ásamt förunauti sínum. Eftir 1-2 mínútur fór svo að freyða út um allt í gosbrunninum og kom þá í ljós að kappinn hafði hellt sápu í gosbrunninn! Þegar hann kom svo aftur að sjá afraksturinn náðum við honum á filmu (minniskort) og voru aðferðirnar keimlíkar því sem sjá mætti í Bond mynd, klifrað upp þakrennuna og yfirlitsmynd tekin. Ef einhver vill vera hetja og handtaka stórglæpamanninn þá er hér meðfylgjandi mynd af kappanum.Þetta var semsagt alveg stórgóð ferð og munum við tvímælalaust heimsækja veldi baunanna síðar. Því miður gafst ekki tækifæri til að heimsækja ættmennin sem búa hinum megin í Danmörku og því alveg nauðsynlegt að gera okkur aðra ferð.
Hej Hej,
Alli & Sylvía
Comments:
<< Home
OOOOOjjjjjj áttir þú ekki fallegri mynd af mér? jakk, bjakk, ég vil taka það fram við lesendur þessarar greinar að ég er ekki svona hrikalega ómyndarleg....ég bara myndast yfirleitt illa!!! En annars erum við og Misse bara hress að vanda. Takk fyrir síðast kæra kærastapar
Hvaða e-mail adressu notarðu Sylvía? Ég var að reyna að senda á heitu kisuna hjá hotmail en það virkaði ekki...
Skrifa ummæli
<< Home


