föstudagur, júlí 29, 2005

 

Heitt - mjög heitt

Já, það er steikjandi hiti hjá okkur þessa dagana. Búið að malla upp undir 35°C og þegar það fer eitthvað upp fyrir 30°C þá fer maður að finna fyrir því. Nutum þess þó á ströndinni í gær þar sem við kældum okkur reglulega í vatninu. Tókum að sjálfsögðu með okkur vatnsflösku sem sett var í frystinn kvöldið áður og hélt það algerlega í okkur lífinu.

Hérna eru þeir duglegir að vökva malbikið þar sem það er farið að bráðna undan hitanum. Alli þurfti að halda fast í Sylvíu þar sem hún ætlaði sér að hlaupa á eftir bílnum í hálfgerðu óráði. Þetta endaði þó allt vel.

Það virðist sem svo að fleiri þoli ekki hitann. Fengum nefninlega óvænta heimsókn. Fundum meðalstóra engisprettu í góðum gír í baðkarinu hjá okkur .. meðan við vorum í því! Þar sem við erum náttúrulega týpískir Íslendingar þá panikuðum við algerlega og fórum á hlaupum út úr sturtunni. Engisprettan var aftur á móti sallaróleg og var ekkert að kippa sér upp við þetta. Blessuð sé minning hennar.



Bíllinn sem vökvar göturnar er kominn aftur - Sylvía er hlaupin út og Alli á eftir..

Comments:
Til hamingju með nýja dýrið ykkar. Hér er bara massa rigning. Sápan mallar ennþá í gosbrunnum bæjarins....mikill húmor þar.
 
Skrifa ummæli

<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?