sunnudagur, júní 26, 2005

 

Gestagangur

Jæja, höfum ekki verið sérlega dugleg að skrifa enda búin að hafa gesti undanfarnar tvær vikur. Mamma, pabbi (tengdó) og Matti komu hingað mánudaginn 13. júní. Ferðin byrjaði nú ekki vel þar sem flug þeirra frá Danaveldi var fellt niður - já það var bara hætt við það! Þeim seinkaði því um nokkra klukkutíma en komu þó um miðjan dag. En eins og við skötuhjú segjum "fall er fararheill" (tömdum okkur þann hugsunarhátt eftir fyrstu nóttina hérna :-)

Byrjuðum ferðina á dýragarðinum, við höfðum ekki farið þangað, vorum alltaf að bíða eftir Matta. Garðurinn er hiklaust með flottari dýragörðum og augljóslega mikið í hann lagt. Þar komumst við að því að sæljón eru einstaklega grumpy dýr. Annars var einna skemmtilegast að sjá leðurblökurnar því þær fá að fljúga lausar um í myrkvuðum göngum. Maður getur fengið þær beint í fangið ef maður er fyrir þeim. Þær eru þó mun færari í myrkri en við og því engar áhyggjur að hafa. Sumir voru þó frekar smeykir.

Að sjálfsögðu var borgin gengin þver og endilöng. Fannst okkur öllum þó standa upp úr að fara á hjólabáta á Vltava (Moldá). Þar gátum við farið undir Karlsbrúnna og upplifað Prag á sama hátt og fiskarnir í ánni. Við unga parið vorum að sjálfsögðu mun sprækari og íhuguðum að skutla líflínu til hinna eldri. Mælum að sjálfsögðu með slíkri ferð við alla sem koma til Prag.

Ekki var þó bara skoðað Prag heldur var farið til Kutna Hora en þar má finna eitt það merkilegasta fyrirbæri sem við höfum nokkur sinni séð! Þetta er einvers konar klaustur en að innan er það skreytt með mannabeinum. Fjöldinn er ógnvænlegur, en okkur skilst að á þessum 80 fm eða svo séu um 40.000 beinagrindur - alvöru beinagrindur! Það er nú eiginlega ekki hægt að lýsa þessu með orðum og ekki annað hægt en að verða kjaftstopp. Myndirnar eru einmitt þaðan og athugið að á efri myndinni er beinahrúga fyrir aftan þau sem innihalda tugþúsundir beina.

Eftir að Alli fór aftur til vinnu var farið á ströndina hér í Prag. Þetta var að sjálfsögðu gert í mjög góðu veðri og sást það vel á rauðum bjarma sem umkringdi strandarfara næstu daga.

Vonum að gestirnir hafi skemmt sér jafn vel og við. Erum strax farin að bíða eftir næstu gestum.

Over and out,
Sylvía & Alli

Comments: Skrifa ummæli

<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?