miðvikudagur, júní 08, 2005
Crazy weather
Við höfum komist að þeirri niðurstöðu að á Íslandi er mjög takmarkað veður. Maður þekkir bara rigningu, snjó og rok þaðan. Hérna er sko eitthvað nýtt af nálinni. Það er ekkert sjaldgjæft að upplifa þrumur og eldingar hér. En við upplifðum þó eitt það magnaðasta eftir að við fluttum hingað núna nýlega.Það var nefninlega 30°C hiti úti en skýjað. Alli að keyra heim úr vinnunni og Sylvía heima. Alli var einmitt nýbúinn að hafa orð á logninu en þegar ég leit út fannst mér rosalega mikill vindur, tréin í garðinum nánast á hliðinni. Þá kom haglél - já, í þessum 30°C kom haglél og grenjandi rigning - ekkert íslenskt sull. Ekkert svona íslenskt haglél heldur voru höglin á stærð við vínber og upp í golfbolta! Alli var að keyra og vissi ekki hvaðan á sig stóð veðrið (einstaklega skemmtilegt orðalag í þessu tilfelli) því það drundi svoleiðis í bílnum og hann upptekinn við að sveigja fram hjá heilu og hálfu trjánum sem fuku á veginn. Eins og þið getið ímyndað ykkur var fólk náttúrulega fljótt að koma sér í skjól enda ekkert grín að vera rotaður af hagli!
Þegar nær dró heimilinu hafði myndast árfarvegur á vegunum og þar sem við erum ekki á Hummer átti litla greyið (Golfinn okkar) erfitt með sig og ætlaði varla að ná að klára ferðina. Þetta hafðist þó að lokum.
Sylvía var heima og um leið og hún sá hvað í stefndi með veðrið var hún fljót að ná í myndavélina (vissum að þið mynduð ekki trúa þessu án mynda) og búa til sönnunargögn. Eigum líka videoclip sem hægt er að skoða hér, verið með hljóðið á. ATH enn og aftur - það var 30°C þegar þetta var tekið!
Annars hefur lítið á daga okkar drifið síðan síðast. Erum bara að njóta þess að búa í útlandinu. Svo eru bara 5 dagar í fyrstu gestina okkar :-) Mamma, pabbi og Matti alveg að koma - vantar bara Gauja og Brand.
Kveðja,
Sylvía & Alli

