laugardagur, maí 28, 2005
Feelin' hot hot hot
Já það er sko heitt hjá okkur hérna í Prag. Hangir í 30°C sem er bara ljúft! Erum búin að baka okkur almennilega í dag og stefnir í áframhaldandi mall á morgun :-)Skiljum hreinlega ekki af hverju Pragbúar eru ekki búnir að gera vatnsleikjagarð hérna, það væri sko vel þegið! Alli reyndi þó að skapa þannig stemningu með því að hella yfir Sylvíu meðan hún lá afslöppuð í sólbaði. Þetta reyndist ekki hafa sömu áhrif og meðal sundlaug. Alli mun þó halda áfram að reyna.
Sólardögum er eytt í garðinum hérna hinum megin við götuna. Þar safnast saman þó nokkur hópur af fólki, Tékkum, útlendingum og að ógleymdum hundunum og alltaf góð stemning. Höfum þó komist að þeirri niðurstöðu að kanarnir hérna skari fram úr þegar kemur að frisbee-kasti þar sem þeir halda á bjórglasi án þess að hella niður dropa á meðan þeir kasta tugi metra.
(Alli: Guðjón þú verður að koma hingað í æfingabúðir, aðstaðan ólíkt betri en hjá Landmat.)
Jæja, ætlum að koma okkur út að borða.. að sjálfsögðu utandyra.
Sylvía & Alli
Comments:
<< Home
grænköflótti svefnsófinn er orðinn blár og líður vel á nýju heimili...
biður voða vel að heilsa...
zvenni...
Skrifa ummæli
biður voða vel að heilsa...
zvenni...
<< Home

