fimmtudagur, apríl 21, 2005
Brúmm brúmm!
Já, mikið rétt. Við erum loksins komin með bíl og getum því týnst á miklu stærra svæði en áður. Það tókst ágætlega í gær. Vorum á leið í IKEA samkvæmt korti sem við höfðum fjárfest í en enduðum út af kortinu (ath. kortið á að þekja alla borgina!). Þetta hefði nú ekki verið svo slæmt nema fyrir það að allt í einu fór olíuljósið að blikka! Nú voru góð ráð dýr. Næsta sjáanlega mannvirki var hjólhýsi og erfitt að leiðbeina leigubíl til að koma þangað.
Eftir að hafa mælt olíuna á bílnum var ákveðið að reyna að starta á ný. Ekkert ljós kviknaði og keyrt var af stað á ný og viti menn, við enduðum í IKEA. Að vísu rétt fyrir lokun og því sprettað í gegnum búðina. Þeir sem farið hafa í IKEA átta sig á hvað það geta verið mikil vandræði að mæta rétt fyrir lokun – tekur fleiri mínútur að bögglast í gegnum alla búðina áður en maður kemur að kössunum!
Annars er ekkert grín að keyra hérna í Prag. Á Íslandi þykir stæði ekki boðlegt nema að það séu a.m.k. 150 cm fyrir framan OG fyrir aftan bílinn. Hérna þykir bara nokkuð gott ef það eru 15 cm sitthvorum megin við bílinn og léleg nýting ef meira er. Síðan eru þeir ótrúlega hrifnir af einstefnugötum – allt upp í 5 akreina einstefnugötur. Þannig ef maður tekur eina vitlausa beygju getur maður lent í því að keyra fleiri kílómetra áður en hægt er að rétta sig af á ný (við ættum nú að þekkja það).
Meðan við munum! Allir eiga að krossleggja fingur fyrir Sylvíu næsta föstudag klukkan 10:00 (8:00 að íslenskum tíma). Hún er að fara í viðtal hjá háskólanum sem sótt var um í og þetta þarf að ganga vel. Við erum búin að rölta hjá skólanum og þetta lítur mjög vel út, rétt hjá Karlsbrúnni. Reyndar er smá vandamál. Sylvía fór þangað með einhver gögn fyrr í vikunni og það reyndist meira en að segja það að komast inn. Hurðin er eitthvað ægilegt kastalahlið sem er ekkert fyrir meðalmanninn að átta sig á hvernig á að komast í gegnum. Það verður því að krossleggja líka 5 mínútum fyrr að hún komist inn í skólann ;-)
Síðan ætlum við að fara að taka okkur á í blogginu. Fengum smávegis skammir fyrir að vera ekki nógu dugleg að uppfæra. Viljum þó segja okkur til málsbóta að við erum búin að vera á hvolfi við að standsetja heimili. Höfum ekki einu sinni fundið sófa í stofuna enn þá þannig hún er enn galtóm. Einnig kom í ljós að við erum með bloggið vitlaust stillt þannig aðeins þeir sem eru skráðir meðlimir blogspot geta commentað (skilið eftir skilaboð) fyrir neðan hvert innlegg hjá okkur. Úr þessu verður bætt í snarhasti! Catia – þakka ábendinguna ;-)
Biðjum að heilsa í allar áttir,
Alli & Sylvía

Comments:
<< Home
ÚFF! LOKSINS GET ÉG TJÁÐ MIG HÉRNA!IKEA-ferðir geta orðið snúnar!Lentum í svipuðu dæmi um daginn,nema að þarna lentum við í SKUGGALEGU hverfi,ég var ekki lengi að troða alla peningana mína í brjóshaldarann og á hinum ýmsum stöðum,ha! Látið mig vita þegar þið komið með síma...Hvernig gengur annars tékkneskan ;)?
Kv. Catia
Kv. Catia
Sæl elskurnar mínar báðar og gleðilegt sumar að íslenskum sið! Mikið var ég fegin að finna út úr símanúmerunum um daginn og heyra hvað var gott hljóð í ykkur - enda hvernig má annað vera, borgin er alveg yndisleg. Hvernig endaði svo sagan um olíuljósið?
Við munum svo sannarlega krossleggja fingur fyrir þér Sylvía mín kl. 07.55 á morgun - þú rúllar þér inn!
Ástar- og saknaðarkveðjur. Mamma:D o.fl. á Húsavík.

Sjii** ég hélt fyrst að það stæði Búmm búmm en ekki brúmm brúmm....ég fékk sting í magan og hélt að Sylvía væri s.s. orðin búmm búmm....en það var nú einhver misskilningur hjá mér haha. Jæja það er hrikalega gaman að lesa þetta hjá ykkur gott að það gengur vel, ég er spennt að heyra hvernig gekk hjá Sylvíu í skólaviðtalinu :o)
Skrifa ummæli
<< Home