fimmtudagur, apríl 07, 2005
Alla leið
Þá erum við mætt til Prag!
Það sem kemur okkur mest á óvart er veðrið hérna. Við áttum jú von á að það væri örlítið skárra en "heima" á Íslandi en það er töluvert mikið heitara hérna. Erum búin að vera á röltinu í léttum fatnaði og það er ekkert mál, semsagt hið besta mál. Sylvía brosir út að eyrum :-)
Mikið af fallegum flottum byggingum og allt í skrauti. Unglingar telja sig þó færari en byggingameistarar í þessum efnum og hjálpa fullmikið til við skreytingar að okkar mati.
Morguninn fór í að skoða íbúðir og við erum líklega búin að finna þá einu réttu. Nú er bara verið að víla og díla og kemur í ljós í fyrramálið hvort það gengur allt saman eftir. Að sjálfsögðu er gestaherbergi til staðar og hér með skorað á alla sem þetta lesa að fara að safna fyrir ferð til Prag!
Jæja, ætli það sé þá ekki kominn tími á að rölta út og næla sér í eitthvað gott í svanginn áður en við höldum áfram að skoða borgina.
Bless í bili,
Alli & Sylvía

Comments:
<< Home
Það er gott að þetta gekk svona vel upp hjá ykkur! Sylvía, word of mouth er að mall-in þarna séu úr marmara...
Gangi ykkur rosa vel og hafið það gott!
Skrifa ummæli
Gangi ykkur rosa vel og hafið það gott!
<< Home